Dómsmálaráðherra hefur skipað stýrihóp um stefnumótun í löggæslu. Hópnum er falið að marka heildstæða stefnu, skipulag og framtíðarsýn fyrir íslenska lögreglu og greina þróun löggæslumála til lengri tíma.
„Það er ein af frumskyldum ríkisins að tryggja öryggi almennings. Til að standa undir því þurfum við skýra stefnu sem byggir á greiningum, raunhæfri forgangsröðun og mælanlegum markmiðum. Með þessari vinnu erum við að skapa traustan grunn fyrir löggæslu framtíðarinnar,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Unnið verður að gerð nýrrar löggæsluáætlunar þar sem sérstök áhersla verður lögð á að bregðast við breyttri þróun brotastarfsemi í samfélaginu. Meðal þeirra þátta sem áætlunin mun taka til eru skipulögð brotastarfsemi, málefni landamæra, samfélagslöggæsla, kynferðisbrot, efnahagsbrot og netbrot.
Jafnframt verður lögð áhersla að sögn stjórnvalda á að efla sýnileika lögreglu, styrkja traust almennings til löggæslu og auka öryggiskennd í samfélaginu. Markmiðið er að tryggja að löggæsla taki mið af breyttum aðstæðum og þörfum samfélagsins á hverjum tíma.
Við mótun áætlunarinnar segja stjórnvöld að horft verði til reynslu annarra Norðurlanda og hvernig nýta megi lærdóm af stefnumótun þeirra og stjórntækjum í löggæslumálum. Með því er stefnt að því að byggja á bestu þekkingu og reynslu sem fyrir liggur á sviðinu.
Stýrihópur sem fer með vinnuna mun starfa í nánu samstarfi við öll lögregluembætti landsins og lögregluráð, auk embætta ríkisaksóknara og héraðssaksóknara. Þá verður jafnframt leitað sjónarmiða frá félagasamtökum, fræðasamfélaginu og öðrum viðeigandi stofnunum til að tryggja víðtækt samráð við gerð áætlunarinnar.
Gert er ráð fyrir að vinnu hópsins ljúki vorið 2026.
Stýrihópurinn
- Grímur Grímsson, formaður
- Birgir Jónasson
- Grímur Hergeirsson
- Margrét Kristín Pálsdóttir
- Rannveig Þórisdóttir
- Stefán Sveinsson


Komment