1
Heimur

Fjögurra barna faðir fannst látinn í klettasprungu á Spáni

2
Menning

Sigurlíkur VÆB hafa aldrei verið betri

3
Fólk

Jóhann Alfreð selur gullfallegt raðhús

4
Heimur

Johnny Depp mætti óvænt á veitingastað á Tenerife

5
Innlent

Sveinbjörn játaði líkamsárás fyrir dómi

6
Fólk

Anna tekur fulla ábyrgð á sumarblíðunni á Íslandi

7
Fólk

Skáld selur krúttíbúð

8
Menning

Alþjóðleg samtök síonista hvetja fólk til að kjósa Ísrael í kvöld

9
Heimur

Stofnandi Ben & Jerry’s handtekinn við mótmæli á Bandaríkjaþingi

10
Innlent

Ný kynfræðsluhandbók borgarinnar tekur mið af inngildingu

Til baka

Grunsamlegur maður var myndbirtur

Borgari í Reykjanesbæ náði myndum af manni. „Halló, það er ég á þessari mynd“.

Grunsamlegur maður í Reykjanesbæ
Grunsamlegi maðurinnVar gripinn af bæjarbúum við að kíkja inn um gluggann.
Mynd: Facebook / Reykjanesbær

Maður sem gekk inni í garði í Reykjanesbæ í dag og kíkti inn um glugga var til umræðu í Facebook-hóp bæjarbúa í dag. „Fjölmenning?“ spurði einn bæjarbúi.

Það var nafnlaus aðili sem birti myndirnar af manninum og sagði hann ganga á milli glugga. „Kannast einhver við hann?“ spurði nafnlausi.

Hann er hvattur til að kalla út lögreglu. Annar bæjarbúi birtir síðan mynd af öðrum manni í hverfinu. „Það er annar að skoða líka,“ segir hann. „Hvaða rugl er í gangi?“ spyr sá nafnlausi. „112!“ hvetur einn til.

Áður en yfir lýkur blandar kona sér í umræðuna. „Maðurinn minn var ekki að stela neinu hann sá bara köttinn okkar inni í húsinu. Maðurinn minn fór bara að banka á hurðina til að láta okkur vita að kötturinn minn væri inni,“ segir hún.

Síðan kemur maðurinn sjálfur fram. „Halló, það er ég á þessari mynd, ég var einfaldlega að leita að kettinum mínum, þú getur staðfest það við eiganda hússins,“ segir hann. „Annars vegar er gott að deila þessum myndum því Ísland er rugl.“

Einhverjir bæjarbúar gera síðan athugasemd við eftirlitssamfélagið.

„Ég læstist einusinnni út úr íbúðinni minni þegar ég var ung og grönn og náði að skríða inn um gluggann, er þakklát að samfélagsmiðlar voru ekki til þá. Hvernig væri að tala við manninn áður en þú ásakar hann um eitthvað óheiðarlegt,“ segir ein.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


img_1382_custom
Innlent

162 ný leikskólapláss í Reykjavík

Fiskeldi
Landið

Mikill seiðadauði setti mark sitt á afkomu Kaldvíkur

Johnny Depp
Heimur

Johnny Depp mætti óvænt á veitingastað á Tenerife

Jón Óttar Ólafsson
Slúður

Ari Eldjárn hitti Jón Óttar

Eurovision
Menning

Alþjóðleg samtök síonista hvetja fólk til að kjósa Ísrael í kvöld

VÆB æfing eurovision 2025
Menning

Sigurlíkur VÆB hafa aldrei verið betri

Héraðsdómur Reykjavíkur
Innlent

Sveinbjörn játaði líkamsárás fyrir dómi