1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

6
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

7
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

8
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Innlent

Kvörtun vegna erlendra ökuskírteina fékk ekki brautargengi

Til baka

Átján mánaða gæsluvarðhald leiddi til sjálfsvígstilraunar

„Ég var svo þunglynd og svo einangruð og fullkomlega meðvituð um að almenningi væru sagðar lygar um okkur“

Charlotte Head
Charlotte HeadCharlotte er laus úr prísundinni

Charlotte Head, 29 ára breskur aðgerðarsinni og fyrrverandi góðgerðastarfmaður, segist hafa verið meðhöndluð eins og hryðjuverkamaður af breskum yfirvöldum eftir að hún var handtekin vegna mótmælaaðgerða tengdra stuðningi við Palestínu vegna þjóðarmorðs Ísraela. Áður en hún var handtekin starfaði hún við að styðja þolendur heimilisofbeldis og hafði unnið sjálfboðaliðastarf í flóttamannabúðum í Calais.

„Alveg rosalegur hryðjuverkamaður,“ segir hún háðsk í viðtali við Al Jazeera.

Head tilheyrir svokölluðum „Filton 24“, hópi aktívista sem eru sakaðir um að hafa ráðist inn í starfsstöð Elbit Systems UK í Bristol í ágúst 2024. Elbit er dótturfélag stærsta vopnaframleiðanda Ísraels. Í kjölfarið, og eftir önnur tengd atvik, settu bresk stjórnvöld samtökin Palestine Action, sem lýstu ábyrgð á aðgerðunum, á lista yfir hryðjuverkasamtök.

„Við vorum meðal fyrstu aktívista í mjög langan tíma sem voru meðhöndlaðir eins og hryðjuverkamenn,“ segir Head og bætir við að sú flokkun hafi haft afgerandi áhrif á aðstæður hennar í fangelsi.

Hún segir að fjölskylda og vinir hafi lent í miklu skrifræði við að reyna að heimsækja hana og að lesefni hennar hafi verið ritskoðað. Slíkar lýsingar samræmast frásögnum annarra sem tengjast Palestine Action, þótt dómsmálaráðuneytið hafi hafnað ásökunum um mismunun.

Þrátt fyrir að hafa ekki verið sakfelld fyrir neitt brot sat Head í fangelsi í 18 mánuði, langt umfram venjulegt hámark gæsluvarðhalds í Bretlandi. Hún var látin laus gegn tryggingu fyrir þremur vikum. Verjandi hennar líkti henni við súffragettu fyrir dómi.

Eftir lausnina rifjar hún upp andlega erfiðleika fangelsisvistarinnar. Hún var flutt langt frá heimabæ sínum, sem jók einangrunina, og segir að hún hafi á einum tímapunkti reynt að svipta sig lífi.

„Ég var svo þunglynd og svo einangruð og fullkomlega meðvituð um að almenningi væru sagðar lygar um okkur, af lögreglu, hægri pressunni og ríkinu sjálfu, og ég hafði ekkert vald til að hrekja þá frásögn.“

Hún segir tilraunina hafa sprottið af algjöru vanmáttar- og stjórnleysisástandi:

„Ég reyndi að taka mitt eigið líf … eingöngu vegna vanmáttarins sem felst í því að vera notuð sem pólitískt peð og hafa mjög takmarkaða stjórn á eigin lífi.“

Eftir atvikið var hún flutt á sjúkrahús en handjárnuð allan tímann og send aftur í fangelsi daginn eftir. Að hennar mati kallar fangelsiskerfið á „gríðarlegar“ umbætur.

Palestine Action var stofnað árið 2020 og hefur beint aðgerðum sínum að vopnaframleiðendum sem samtökin telja tengjast stríðsglæpum Ísraels. Helsta skotmarkið er Elbit Systems, sem framleiðir meðal annars dróna sem hafa verið notaðir í þjóðarmorðinu á Gaza, þótt breska dótturfélagið neiti því að það útvegi ísraelska hernum vopn.

Head og aðrir aðgerðarsinnar hafa neitað sök í öllum málum. Hún er sögð hafa ekið sendibíl inn á lóð verksmiðjunnar í Bristol til að komast inn.

Þrátt fyrir persónulegar afleiðingar segist hún staðráðin í að halda áfram baráttunni:

„Það er svo sárt að sjá að svo lítið hefur breyst í Palestínu, að þjóðarmorðið hefur haldið áfram óáreitt,“ segir hún. „Þetta er skelfilegt, en staðfestir það sem við höfum lengi vitað: að ríkisvöld eins og Ísrael, Bandaríkin og Bretland ætluðu aldrei að virða alþjóðalög. Þess vegna verðum við að halda áfram að láta í okkur heyra og reyna að koma á raunverulegu réttlæti fyrir Palestínu.“

Leiðir til aðstoðar

Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á: Píeta samtökin, s. 552-2218, Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð hringið í 112.

Varðandi stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is, Sorgarmiðstöð, s. 551-4141, og [email protected], síma Píeta samtakanna, 552-2218. Í neyð hringið í 112.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Íbúum fækkar í 19 sveitarfélögum af 61.
Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Myndband náðist af ódæðinu
Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum
Heimur

Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Loka auglýsingu