
MAST Í Reykjavík
Mynd: Víkingur
Matvælastofnun varar við neyslu á forsteiktum fiski í raspi og fiskstöngum frá Grimi Kokki ehf. sem framleidd eru með best fyrir janúar 2027 vegna grun um Listeriu monocytogenis.
Um er að ræða innköllun á allar framleiðslulotur með best fyrir janúar 2027.
Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar heldur farga eða fá endurgreitt í verslun sem hún var keypt.
Innköllunin á við eftirfrandi:
- Vörumerki: Grímur kokkur ehf
- Vöruheiti: Forsteiktur fiskur í raspi, Forsteiktar fiskistangir
- Lýsing á vöru: Forsteiktur fiskur í raspi, Forsteiktar fiskistangir
- Framleiðandi: Grímur kokkur ehf
- Rekjanleiki: Allar vörur sem hafa Best fyrir janúar 2027.
- Strikanúmer:
Forsteiktur fiskur í raspi: 5690904000043 / 5690904004041
Forsteiktar fiskistangir: 5690904004904 / 5690904014903 - Geymsluskilyrði: Frystivara
- Dreifingarlisti: Krónan, Hagkaup, Samkaup, Fjarðarkaup, Hlíðarkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Kaupfélag V-Húnvetninga, Reykjavíkurborg, Hrunamannahreppur, Útflutningsfiskur ehf, Skerjakolla, Verslunin Kassinn ehf.
Mynd: MAST
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment