1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Peningar

Helgi í Góu verður ríkari

6
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

7
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

8
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

9
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

10
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

Til baka

Segir íbúa hætta við barneignir vegna Reykjavíkurborgar

„Hvað hefur Samfylkingin gert fyrir barnafjölskyldur á síðustu misserum?“

Alþingi óundirbúnar fyrirspurnir - Snorri Másson  - Diljá Mist
Diljá Mist og Snorri MássonEr annt um barnafjölskyldur.
Mynd: Víkingur

Á Alþingi í gær fór fram umræða um stöðu barnafjölskyldna á Íslandi en það var Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem hóf umræðuna og þakkaði Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, henni fyrir umræðuna.

Það var hins vegar Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, sem stal senunni með sinni ræðu en hann beindi henni sérstaklega að kjörnum borgarfulltrúum í Reykjavík. Hélt Snorri því meðal annars fram í ræðu sinni að fólk hefði hætt við að eignast börn vegna skorts á leikskólaplássum fyrir börn í Reykjavík.

„Herra forseti. Það er nú forvitnilegt að koma hingað og hlusta á þingmenn ríkisstjórnarinnar, og kannski sérstaklega Samfylkingarinnar, ræða hag barnafjölskyldna á Íslandi,“ sagði Snorri í upphafi ræðu sinnar. „Hvað hefur Samfylkingin gert fyrir barnafjölskyldur á síðustu misserum? Ég hef ekki orðið var við mikið annað hér inni á þingi en kerfisbundnar skattahækkanir sem bitna sérstaklega á barnafjölskyldum. Á sama tíma eru ríkisútgjöld aukin fram úr öllu hófi, vel að merkja í þágu eiginlega allra annarra hópa en barnafjölskyldna, en þó eru útgjöldin þannig að þau viðhalda verðbólgunni og þessum háu vöxtum sem eru að sliga barnafjölskyldurnar. Sama ríkisstjórn neitar að leyfa nýbökuðum foreldrum að skipta orlofinu á milli sín þannig að það henti þeim og sviptir það þar með þessum 12 mánuðum í heildina, af hugmyndafræðilegum ástæðum. Þessu mætti sleppa en ákveðið er að gera það ekki,“ hélt hann áfram og spurði hvað Samfylkingin hafi verið að gera fyrir barnafjölskyldur.

„Við getum rætt Reykjavíkurborg. Þar eru fjölskyldur að fresta eða hætta við barneignir vegna þess að ekki er hægt að reiða sig á leikskólapláss fyrir kannski tveggja eða jafnvel tveggja og hálfs árs börn. Það er ekki til peningur í leikskólamálin, er sagt. Það er samt til peningur til að breyta gamalli kynlífstækjaverslun í leikskóla fyrir 3,2 milljarða kr. Það er reikningurinn núna fyrir Brákarborg vegna þess að það þurfti að leggja torfþökur á þakið sem það síðan þoldi ekki með tilheyrandi viðgerðarkostnaði,“ og sagði Snorri á að Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hafi fengið verðlaun fyrir bygginguna en var áður borgarstjóri Reykjavíkur

„Ekki skánaði málið hjá Reykjavíkurborg með síðustu tilraun þeirra til að telja alla vega foreldrum trú um að verið væri að huga að hagsmunum barnafjölskyldna þegar borgin fól sérfræðingum á mannréttindasviði Reykjavíkurborgar að semja leiðbeiningar um það hvernig skyldi kynjaskipta barnaafmælum í Reykjavík þannig að það samræmdist nýjustu kynjafræðikenningum mannréttindasviðsins. Nei, hún er ekki falleg, frammistaða Samfylkingarinnar í málefnum barnafjölskyldna. Ég er raunar ekki kominn hingað til að biðja Samfylkinguna um að gera meira fyrir barnafjölskyldur á Íslandi. Ég held að það sé miklu nær að biðja Samfylkinguna um að taka sér frí frá því að koma nálægt málefnum barnafjölskyldna á Íslandi. Þá fyrst held ég að hagur fjölskyldnanna færi að vænkast.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé
Menning

Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé

„Við erum sennilega eitt af þessum böndum sem trúa því að þau eigi eitthvað eftir ósagt.“
Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd
Heimur

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna
Heimur

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Heimur

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum
Menning

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur
Innlent

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Vísar á bug sölu á Landsvirkjun
Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Loka auglýsingu