1
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

2
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

3
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

4
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

5
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

6
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

7
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

8
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

9
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

10
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

Til baka

Egill segir Davíð Oddsson sjaldan hafa mætt í viðtöl

„Vildi bara tala við suma og þá undir mjög sérstökum kringumstæðum“

Egill Helgason
Egill HelgasonFáir hafa bókað fleiri viðtöl við stjórnmálamenn en Egill
Mynd: RÚV

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, birti í gær pistil þar sem hann sakar forustumenn ríkisstjórnarinnar um að þora ekki að mæta í mæta þáttinn Spursmál hjá Morgunblaðinu. Í sama pistli hrósar hann Ara Edwald fyrir að mæta í viðtöl við alla miðla í kjölfar þess að hann var tilkynntur sem oddviti Miðflokksins í Reykjavík.

Einn af þeim sem leggja orð í belg í athugasemdakerfinu er Egill Helgason en hann stjórnaði Silfrinu í mörg ár og hægt að fullyrða að fáir þekki jafn vel í fá stjórnmálamenn í viðtöl og hann.

„Ég get svosem sagt ýmsar sögur af þessu frá því ég stjórnaði pólitískum umræðuþætti. Sá sem var alltaf til í að koma og kærði sig kollóttan um hverjum hann þurfti að mæta - Steingrímur J. Sigfússon. Sá tregasti sem vildi bara tala við suma og þá undir mjög sérstökum kringumstæðum – Davíð Oddsson. Sá sem vildi helst aldrei tala við fjölmiðla - Finnur Ingólfsson,“ skrifar Egill og var Elliði ekki lengi að svara honum.

Ekki nýjar fréttir

„Þetta hljómar dáldið eins og: "Svo skal böl bæta, að benda á annað verra". Finnst þér það ekki dapurt að forsvarsfólk ríkisstjórnar skuli ekki þora í þátt eins og þann sem Stefán Einar Stefánsson stjórnar af röggsemi? Er það ekki jafnvel enn aumkunarverðara en að héraðssaksóknari og forstjóri Samkeppniseftirlitsins (sem veita RÚV og heimildinni ítrekað viðtöl) þori ekki í þann þátt? Finnst þér, sem reyndum fjölmiðlamanni, það ekki aumt?“ skrifar Elliði.

„[Ég] hef aldrei séð þennan þátt svo ég veit ekki hvað um ræðir nákvæmlega. En þetta eru svo langt í frá nýjar fréttir. Ég reyndar ef ég væri pr-maður fyrir stjórnmálamann, þá myndi ég ráðleggja viðkomandi að fara sjaldan í viðtöl, spara sjálfa sig, og velja vettvanginn og tímasetninguna vel. Má jafnvel segja að það hafi Davíð kunnað manna best. En hvort slík aðferð er endilega lýðræðislegust, það er annað mál,“ segir Egill svo að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu