1
Innlent

Lögreglan bað Slökkviliðið um aðstoð í nótt

2
Heimur

Donald Trump fagnar dauða Mueller

3
Fólk

Heiðrún rifjar upp erfiðan missi systur

4
Heimur

Buffy-stjarna lést í svefni

5
Heimur

Fimm ára drengur lést eftir að hafa andað að sér helíum

6
Heimur

Bloggarinn sem gagnrýndi Pútín kominn á geðsjúkrahús

7
Innlent

Fann járnvír flæktan í aspasnum

8
Peningar

Sólveig Anna krefst leiguþaks og refsinga við launaþjófnaði

9
Heimur

Ótti eykst eftir eldflaugaárás Írans

10
Innlent

Einn handtekinn eftir stunguárás í miðborg Reykjavíkur

Til baka

Guðmundur Árni og Kommúnistaflokkurinn ósammála um ástæðu Kínaferðar

Kínverjar segjast hafa boðið varaformanninum í heimsókn

Guðmundur Árni Stefánsson
Guðmundur Árni Stefánsson ásamt Lu KangEr vararáðherra í ríkisstjórn Kína.
Mynd: Kommúnistaflokkur Kína

Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, og Kommúnistaflokkur Kína eru ósammála um tilgang heimsóknar Guðmundar til Kína í október í fyrra.

Samkvæmt vefsíðu kommúnistaflokksins var Guðmundi boðið til Kína af flokknum og hann farið fyrir sendinefnd á vegum Samfylkingarinnar, sem á líka að hafa verið í heimsókn. Á síðunni er svo birt mynd af Guðmundi með Lu Kang, vararáðherra í alþjóðaráðuneyti Kína.

Á vefsíðunni er einnig sagt að Kommúnistaflokkur Kína muni halda áfram að styrkja samskipti sín við Samfylkinguna og að heimsókn þessi hafi verið nýtt í slíkt. Sömuleiðis kemur fram að þeir Guðmundur og Kang hafi rætt ýmsa hluti er varðar samskipti Íslands og Kína.

Fór sem ferðamaður

„Það eru skemmtilegar og óvæntar fréttir,“ sagði Guðmundur Árni þegar blaðamaður greindi honum frá því að Kommúnistaflokkurinn fullyrti að Guðmundi hefði verið boðið til Kína en hann segist hafa verið í landinu á eigin vegum.

„Ég var í einkaerindum í Kína í október síðastliðnum og greiddi því eðlilega ferðakostnað úr eigin vasa. Fór þangað að frumkvæði Tryggva Harðarsonar æskuvinar míns, sem var meðal fyrstu stúdenta frá Íslandi í Kína árið 1975. Hópurinn samanstóð af fjölskyldu Tryggva og nokkrum vinum hans,“ sagði varaformaðurinn við Mannlíf.

Þá kannast hann ekki við að Samfylkingin hafi verið með sendinefnd í Kína og slíkt sé ekki framundan.

„Við hittum auðvitað mann og annan í heimsókninni og kynntum okkur ýmisleg málefni,“ sagði Guðmundur þegar hann var spurður út í að hafa hitt Lu Kang. Sagðist hann einnig hafa farið víða um Kína í heimsókn sinni en þá sem ferðamaður.

„Tengsl Íslands og Kína í áratugi, átak Kínverja í loftslagsmálum, samgöngumál og ferðamál, þar á meðal hugsanlegt beint flug milli landanna, voru meðal umræðuefna í samtölum við heimamenn,“ sagði Guðmundur um hvað hann ræddi um við Lu Kang.

„Þá staldraði hópurinn við í vinabæ Hafnarfjarðar, Baoding, þar sem við hittum varabæjarstjóra og fleiri embættismenn og ræddum samskipti bæjanna.“

Tók hann fram að allt hafi þetta verið gott og gagnlegt.

Þarf að láta vita

Mannlíf spurði Dr. Hauk Arnþórsson stjórnsýslufræðing hvort hann sæi eitthvað athugavert við að íslenskir stjórnmálamenn hittu erlenda embættismenn þegar þeir væru að ferðast í einkaerindum.

„Ef íslenski stjórnmálamaðurinn er ekki í umboði neins nema sjálfs síns er þetta eðlilegt. Að því sögðu þarf að taka fram að hann getur búið yfir upplýsingum um landshagi sem hann má ekki gera opinskátt um og honum ber líka skylda til að láta erlendu embættismennina vita að hann hafi ekki umboð til neinna gerninga fyrir Íslands hönd. Óformleg samtöl umboðslauss stjórnmálamanns geta haft á sér tortryggilegan svip.“

Öðru Samfylkingarfólki boðið til Kína

Guðmundur Árni er þó ekki eini hátt setti maðurinn innan Samfylkingarinnar sem fór til Kína í fyrra en Jón Grétar Þórsson, gjaldkeri flokksins, fór með þremur öðrum Íslendingum til landsins.

„Mér og nokkrum Íslendingum af yngri kynslóð var boðið að vera hluti af 15 manna hópi frá öllum Norðurlöndunum í kynningarferð til Kína,“ sagði Jón Grétar í svari við fyrirspurn Mannlífs. „Okkur var boðið af Kínverjum og hafði kínverska sendiráðið milligöngu um málið. Frá Íslandi voru einstaklingar frá ólíkum stjórnmálaflokkum.“

Jón Grétar Þórsson

Aðrir Íslendingar sem fóru í ferðina voru þeir Steinar Sigurjónsson, meðlimur E-listans í Grímsnes- og Grafningshreppi, Tryggvi Rafnsson, fyrrum formaður Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, og Sveinn Ægir Birgisson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Árborg

„Ég var á eigin vegum eins og við öll sem þarna vorum, en ekki fulltrúar samtaka eða félaga. Þetta var 15 manna hópur með ólíkan bakgrunn. Stúdentar, framkvæmdastjóri, leikari, rithöfundur, starfsmaður í félagsþjónustu og svo framvegis,“ sagði Jón Grétar við Mannlíf

„Nokkrar ræður voru haldnar í ferðinni og lögðu flestir úr hópnum orð í belg. Ég hélt ræður, oftast þakkir fyrir góðar móttökur. Þær voru mæltar af munni fram. Meðal umræðuefna voru umhverfismál og samskipti þjóðanna á vettvangi ferðamála,“ sagði gjaldkerinn þegar hann var spurður hvort að Mannlíf gæti fengið afrit af þeim ræðum sem hann hélt í Kína.

Tilgangur ferðarinnar að sögn Jóns var að læra og fræðast um Kína og að skilja heiminn betur.

„Móttökur og viðmót gestgjafa okkar voru með ágætum. Árangur þeirra t.d. á vettvangi umhverfismála er eftirtektarverður og menning þeirra og stjórnkerfi, þar á meðal lýðræðisvenjur, er okkur framandi. Kínverjar með sína 1400 milljónir manna eru stórveldi á hinu alþjóðlega sviði. Það er ávallt lærdómsríkt að kynnast siðum og venjum annarra þjóða,“ sagði Jón þegar hann var spurður út í hverju þessi ferð hafi skilað.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Segir ný lög veikja stöðu launafólks eftir vinnuslys
Innlent

Segir ný lög veikja stöðu launafólks eftir vinnuslys

„Er líf og heilsa vinnandi fólks minna virði?“
Fjölskylda Nancy Guthrie biðlar enn um hjálp
Heimur

Fjölskylda Nancy Guthrie biðlar enn um hjálp

Ótti eykst eftir eldflaugaárás Írans
Heimur

Ótti eykst eftir eldflaugaárás Írans

Einn handtekinn eftir stunguárás í miðborg Reykjavíkur
Innlent

Einn handtekinn eftir stunguárás í miðborg Reykjavíkur

Donald Trump fagnar dauða Mueller
Heimur

Donald Trump fagnar dauða Mueller

Heiðrún rifjar upp erfiðan missi systur
Fólk

Heiðrún rifjar upp erfiðan missi systur

Fimm ára drengur lést eftir að hafa andað að sér helíum
Heimur

Fimm ára drengur lést eftir að hafa andað að sér helíum

Sólveig Anna krefst leiguþaks og refsinga við launaþjófnaði
Peningar

Sólveig Anna krefst leiguþaks og refsinga við launaþjófnaði

Bloggarinn sem gagnrýndi Pútín kominn á geðsjúkrahús
Heimur

Bloggarinn sem gagnrýndi Pútín kominn á geðsjúkrahús

Fann járnvír flæktan í aspasnum
Innlent

Fann járnvír flæktan í aspasnum

Lögreglan bað Slökkviliðið um aðstoð í nótt
Innlent

Lögreglan bað Slökkviliðið um aðstoð í nótt

Pólitík

Guðmundur Árni og Kommúnistaflokkurinn ósammála um ástæðu Kínaferðar
Pólitík

Guðmundur Árni og Kommúnistaflokkurinn ósammála um ástæðu Kínaferðar

Kínverjar segjast hafa boðið varaformanninum í heimsókn
Feminísk fötlunarhreyfing styrkt um milljónir
Pólitík

Feminísk fötlunarhreyfing styrkt um milljónir

Oddviti Miðflokksins vill loka MAST
Pólitík

Oddviti Miðflokksins vill loka MAST

Sagnfræðingur segir Trump hafa breyst í „stríðsforseta“
Pólitík

Sagnfræðingur segir Trump hafa breyst í „stríðsforseta“

Ungir Sjálfstæðismenn auglýsa eftir sleggju Samfylkingarinnar
Pólitík

Ungir Sjálfstæðismenn auglýsa eftir sleggju Samfylkingarinnar

Sólveig Anna gagnrýnir Ingu Sæland harðlega
Pólitík

Sólveig Anna gagnrýnir Ingu Sæland harðlega

Loka auglýsingu