
Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðin, hefur aftur verið lagður inn á hjartadeild eftir bakslag í lyfjameðferð. Þetta kemur fram í færslu sem hann birti á Facebook.
Gunnar Smári var lagður inn á sjúkrahús í febrúar vegna blóðtappa, en segir nú að ekki sé um alvarlegt ástand að ræða að þessu sinni:
„Þá er maður aftur kominn á hjartadeildina, ekkert alvarlegt, bara eitthvert bakslag í lyfjameðferðinni, líkaminn ekki sáttur.“
Vegna þessa mun hann ekki sinna þáttagerð á næstunni:
„Það er því útséð um að ég verði með viðtöl á Samstöðinni fyrir páska.“
Hann bendir jafnframt á að álagið á litla ritstjórn miðilsins sé mikið, sérstaklega þar sem fleiri starfsmenn hafa einnig glímt við veikindi:
„Það er mikið á þann litla vinnustað lagt, ég lagðist í sama rúmið og María Lilja hafði útskrifast úr fyrir helgi. Saman höfum við meira og minna haldið einu rúmi á hjartadeildinni síðan fyrir jól.“
Að lokum hvetur Gunnar Smári fólk til að styðja við samstarfsfólk hans:
„Það er því mikið álag á þeim sem eftir eru uppistandandi af starfsfólki Samstöðvarinnar, ég bið ykkur um að biðja fyrir því góða fólki. Og kannski að gerast áskrifendur, til að hjálpa okkur yfir þennan hjall.“

Komment