1
Minning

Páll Halldór Jónsson er látinn

2
Pólitík

Jóhann Páll fer í tímabundið leyfi

3
Pólitík

Kallar Guðrúnu „raðljúgandi valdafíkil“

4
Fólk

Klassískt einbýli á frábærum stað til sölu

5
Innlent

Hrakmenni frömdu skemmdarverk

6
Heimur

Úlfur réðst á konu í verslunargötu í Hamborg

7
Heimur

Óvæntar vendingar í morðmáli Charlie Kirk

8
Pólitík

Eiríkur segir Guðrúnu hafa farið með „vísvitandi lygi“

9
Heimur

Flugsamgöngur til Tenerife í slæmu standi vegna verkfalla

10
Innlent

Aðstandandi meints fórnarlambs Skúla Tómasar tjáir sig

Til baka

Gunnar Smári hugar að krossfestingu

„No pain, no gain eins og Ameríkaninn segir.“

Gunnar Smári
Gunnar Smári EgilssonGunnar Smári ætlar að krossinn, segir hann
Mynd: Facebook

Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, greinir frá því í Facebook-færslu að hann hafi glímt við hjartabilun undanfarnar vikur og legið inni á sjúkrahúsi vegna þess. Hann segir ástandið sveiflukennt og að engin einföld lausn sé til staðar.

„Eins og sum ykkar vitið hef ég glímt við hjartabilun síðustu vikur og þurft að leggjast inn á spítala af þeim sökum. Þetta gengur svona og svona, sumt mjakast en annað ekki,“ skrifar hann.

Hann lýsir því að hjartað sé flókið líffæri og að oft sé óljóst hvað valdi slíkum veikindum:

„Því miður er engin einföld lausn til við þessu enda er hjartað flókið þótt það hafi hlægilega einfalt hlutverk, að dæla blóði, og geri það oftast skammlaust. Þar til eitthvað fer útskeiðis. Og þá veit sjaldnast nokkur hvers vegna.“

Segist ætla að „laga andann“

Gunnar Smári segist á meðan læknar vinni að því að bæta líkamlegt ástand hans muni hann sjálfur reyna að vinna í andlegu hliðinni:

„Á meðan læknarnir reyna að fá efnið til að virka ætla ég að reyna að laga andann.“

Hann veltir því upp að álag, bæði andlegt og tilfinningalegt, geti haft áhrif á hjartað og bætir við:

„Ég held það síðari eigi við um mig.“

Áformar krossfestingu

Í færslunni segir Gunnar Smári frá óhefðbundinni leið sem hann hafi íhugað til bata, innblásinn af hefðum á Filippseyjum þar sem fólk lætur krossfesta sig í trúarlegum tilgangi.

„Ég hef aðeins verið að skoða hvað fólk í minni stöðu hefur gert og heillast af fólki á Filippseyjum sem hefur látið krossfesta sig sér til heilsubótar,“ skrifar hann og bætir við:

„No pain, no gain eins og Ameríkaninn segir.“

Hann segir að æskuvinur hans hafi smíðað kross og að til standi að framkvæma athöfnina á Skólavörðuhæð klukkan 12:00 í dag.

„Jóhannes æskuvinur minn er smiður og hefur sett saman fyrir mig kross sem ætti að bera mig og hefur flutt hann upp á Skólavörðuhæð... Þar ætlar Jói að negla mig á krossinn um hádegið og reisa mig upp.“

Leggur áherslu á að þetta sé persónulegt

Gunnar Smári tekur fram að um sé að ræða persónulega athöfn:

„Ég vil taka fram að þetta er einkanleg og persónuleg athöfn, ég hef engar fyrirætlanir um að deyja fyrir ykkar syndir eða nokkurs annars, þarf bara að létta á mínum.“

Hann varar jafnframt við því að hann sé á blóðþynnandi lyfjum og því gæti blætt töluvert.

Að lokum segist hann vona að allt fari vel og þakkar þeim sem hafa hvatt hann:

„Ég treysti að þetta fari allt vel og vil þakka öllum sem hafa hvatt mig til að gera eitthvað í mínum málum.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Alexander Skarsgård mætir á sérsýningu í Bíó Paradís í dag
Menning

Alexander Skarsgård mætir á sérsýningu í Bíó Paradís í dag

Engar ljósmyndir leyfðar
Sirrý gerð að deildarstjóra
Fólk

Sirrý gerð að deildarstjóra

Fannar og Anita Brá selja í Kópavogi
Myndir
Fólk

Fannar og Anita Brá selja í Kópavogi

Börn Dönu Jóhannsdóttur stíga fram eftir ákæru á hendur Skúla
Innlent

Börn Dönu Jóhannsdóttur stíga fram eftir ákæru á hendur Skúla

Aðstandandi meints fórnarlambs Skúla Tómasar tjáir sig
Innlent

Aðstandandi meints fórnarlambs Skúla Tómasar tjáir sig

Eurovision færir sig til Asíu
Heimur

Eurovision færir sig til Asíu

Karlmaður sagður hafa notað HÍ til að þvætta vændispeninga
Innlent

Karlmaður sagður hafa notað HÍ til að þvætta vændispeninga

Engin tengsl fundust milli ferðamanna og þjófnaðar í Freysnesi
Innlent

Engin tengsl fundust milli ferðamanna og þjófnaðar í Freysnesi

Elías Héðinsson er fallinn frá
Minning

Elías Héðinsson er fallinn frá

Bíll alelda í Árbæjarhverfi
Innlent

Bíll alelda í Árbæjarhverfi

Páll Halldór Jónsson er látinn
Minning

Páll Halldór Jónsson er látinn

Úlfur réðst á konu í verslunargötu í Hamborg
Heimur

Úlfur réðst á konu í verslunargötu í Hamborg

Fólk

Sirrý gerð að deildarstjóra
Fólk

Sirrý gerð að deildarstjóra

„Ég hlakka til að kynnast öllum“
Þórdís Vals fær nýtt starf
Fólk

Þórdís Vals fær nýtt starf

Gunnar Smári hugar að krossfestingu
Fólk

Gunnar Smári hugar að krossfestingu

Fannar og Anita Brá selja í Kópavogi
Myndir
Fólk

Fannar og Anita Brá selja í Kópavogi

Klassískt einbýli á frábærum stað til sölu
Myndir
Fólk

Klassískt einbýli á frábærum stað til sölu

„Við áttum að vera hipparnir sem ætluðu að koma á eilífum friði“
Myndband
Fólk

„Við áttum að vera hipparnir sem ætluðu að koma á eilífum friði“

Loka auglýsingu