
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skipað Hönnu Björgu Konráðsdóttur í embætti skrifstofustjóra Raforkueftirlitsins frá og með 1. janúar en greint er frá þessu í tilkynningu frá stjórnvöldum.
Hanna Björg hefur víðtæka þekkingu og starfsreynslu á sviði raforkumála og raforkueftirlits að sögn yfirvalda. Hanna Björg er sviðsstjóri Raforkueftirlitsins hjá Umhverfis- og orkustofnun, en frá árinu 2022 starfaði hún sem deildarstjóri Raforkueftirlitsins hjá Orkustofnun.
Hanna Björg hóf fyrst störf hjá Orkustofnun árið 2015 og starfaði þar til 2017, sem lögfræðingur á sviði auðlindanýtingar og raforkueftirlits og sem rekstrarstjóri og lögfræðingur verkefna uppbyggingarsjóðs EFTA. Þá vann hún sem lögfræðingur innlendra og erlendra orku- og auðlindaverkefna hjá GEORG, Geothermal cluster, árin 2017-2018, áður en hún sneri aftur til Orkustofnunar þar sem hún starfaði sem lögfræðingur Raforkueftirlitsins þar til hún tók við stöðu deildarstjóra.
Hanna Björg hefur sinnt kennslu hjá Háskólanum á Bifröst frá árinu 2014, þar sem hún hefur kennt námskeið í opinberum starfsmannarétti og stjórnsýslurétti, í eigna- og auðlindarétti og orku- og umhverfisrétti á meistarastigi í lagadeild háskólans.
Hanna Björg lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2014 og hafði áður lokið grunnnámi í viðskiptalögfræði frá sama skóla árið 2012. Auk þessa lauk Hanna Björg BA prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2010.
Hanna Björg er gift Jóhannesi Þórhallssyni lögreglumanni og saman eiga þau þrjú börn.

Komment