1
Heimur

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife

2
Fólk

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír

3
Innlent

Kyrrðarstund haldin í Árbæjarkirkju í ljósi sorglegs slyss

4
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

5
Menning

Bubbi er kominn heim

6
Landið

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni

7
Innlent

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ

8
Fólk

Strandhús á höfuðborgarsvæðinu á sölulista

9
Pólitík

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp

10
Fólk

Frábært fjölskylduhús fáanlegt

Til baka

Herbúðir Þórs nötra

Þór Sigurgeirsson
Þór Sigurgeirsson
Mynd: Aðsend

Nú stefnir í hörkuátök um meirihlutann á Seltjarnarnesi þar sem Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri stjórnar málum í krafti meirihluta Sjálfstæðisflokksins sem hefur farið með meirihluta í bæjarfélaginu um áratugaskeið eða frá upphafi bæjarfélagsins. Prófkjör verður hjá flokknum á næstunni. Þátttaka þar er vægast sagt döpur en aðeins átta manns taka þátt. Fyrir seinustu kosningar voru þátttakendur 14. Þór bæjarstjóri gefur einn kost á sér í fyrsta sæti. 

Flokkurinn hélt meirihlutanum naumlega fyrir síðustu kosningar með aðeins 50,1 prósent atkvæða. Þá voru tvö önnur framboð um hituna. Nú stefnir í að Samfylking, Viðreisn og Óháðir bjóði fram sameiginlegan lista sem vekur hroll í herbúðum Þórs. Gagnrýnt er að fjármál sveitarfélagsins séu í ólagi. Skuldir hafi aukist um 2,7 milljarða króna. Þá hafa loforð meirihlutans um rekstarhagnað ekki staðist. Þór mun hafa lofað 100 milljónum króna í hagnað á síðasta ári og nú stefnir í halla upp á 600 milljónir króna. Þetta kom fram í árslok. 

Tveir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ætla að hætta í ár. Náfrænka Bjarna Benediktssonar af Engeyjarætt, Ragnhildur Jónsdóttir, mun hverfa á braut eftir aðeins eitt kjörtímabil og sömuleiðis Magnús Örn Guðmundsson, sem keppti við Þór um oddvitasætið en laut í gras. Titringur er innan Sjálfstæðisflokksins þar sem sumt bendir til þess að þau sögulegu tímamót nálgist að flokkurinn missi meirihluta sinn ... 

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Ofurfyrirsætan Cristina Galcenco látin
Heimur

Ofurfyrirsætan Cristina Galcenco látin

Hóf ferilinn aðeins 14 ára gömul
María Birta missti sjónina tímabundið eftir flókna aðgerð
Fólk

María Birta missti sjónina tímabundið eftir flókna aðgerð

Guðmundur fær tólf mánaða styrk
Sport

Guðmundur fær tólf mánaða styrk

Sautján ára piltur látinn eftir umferðarslys
Innlent

Sautján ára piltur látinn eftir umferðarslys

Telur líklegast að Frosti verði oddviti Miðflokksins
Pólitík

Telur líklegast að Frosti verði oddviti Miðflokksins

Kyrrðarstund haldin í Árbæjarkirkju í ljósi sorglegs slyss
Innlent

Kyrrðarstund haldin í Árbæjarkirkju í ljósi sorglegs slyss

Jens dæmdur fyrir að berja kærustu sína við bensínstöð
Innlent

Jens dæmdur fyrir að berja kærustu sína við bensínstöð

Strandhús á höfuðborgarsvæðinu á sölulista
Myndir
Fólk

Strandhús á höfuðborgarsvæðinu á sölulista

Lögreglan óskar eftir vitnum
Innlent

Lögreglan óskar eftir vitnum

Hestamaður fluttur á sjúkrahús
Innlent

Hestamaður fluttur á sjúkrahús

Slúður

Fræg mæðgin í eldlínunni
Slúður

Fræg mæðgin í eldlínunni

Bergþór gerir grín að Sjálfstæðisflokknum
Slúður

Bergþór gerir grín að Sjálfstæðisflokknum

Sjálfstæðisflokkurinn logar
Slúður

Sjálfstæðisflokkurinn logar

Loka auglýsingu