Í tilkynningu frá fataversluninni Húrra Reykjavík er greint frá því að henni verði lokað en hún hefur verið ein af vinsælustu fatabúðum borgarinnar í rúman áratug.
„Eftir langa og eftirminnilega vegferð höfum við tekið þá erfiðu ákvörðun að loka Húrra og versluninni okkar við Hverfisgötu í lok apríl. Það er erfitt að kveðja eitthvað sem hefur verið svona stór hluti af lífi okkar en allt hefur sitt upphaf og endi,“ stendur í tilkynningunni.
„Húrra byrjaði sem hugmynd tveggja vina sem fannst vanta ákveðnar vörur, vörumerki og upplifun í Reykjavík — en varð að einhverju sem tilheyrði miklu fleirum. Húrra hefur í yfir áratug sett svip sinn á borgarlífið og verið hluti af verslunar- og tískusenu Reykjavíkur.“
Eigendurnir segjast vera ótrúlega stoltir og fullir þakklætis. Þá hafi Húrra verið vettvangur fyrir stíl, sköpunargleði, hugmyndir og tengsl og að viðskiptavinir, samstarfsaðilar og síðast en ekki síst starfsfólk Húrra stóran þátt í að móta það samfélag sem skapaðist í kringum reksturinn.
„Næstu vikur verða þær síðustu í Húrra sögunni. Verslunin verður opin á meðan birgðir endast og hvetjum við alla til að kíkja við, versla eitthvað fallegt í síðasta sinn og kveðja þannig Húrra Reykjavík með stæl. Allar vörur verða á helmings afslætti.
Við viljum nýta tækifærið til að þakka öllum þeim sem hafa lagt leið sína í verslunina í Húrra í gegnum árin. Stuðningurinn, tryggðin og velvildin er það sem hefur haldið okkur gangandi allan þennan tíma,“ segir í tilkynningunni.
„Við vonumst til að sjá sem flesta á síðustu opnunardögunum og þökkum fyrir okkur.“


Komment