1
Fólk

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu

2
Innlent

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt

3
Innlent

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“

4
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

5
Fólk

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair

6
Fólk

Helgi Magnús kominn aftur á stjá

7
Minning

Þórir Einarsson er fallinn frá

8
Menning

Kærasta drullusokka

9
Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“

10
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

Til baka

Hver er Lúkas Geir?

Mannlíf varpar ljósi á son, bróður og dæmdan morðingja

aðalmeðferð Gufunesmálsins
Lúkas Geir á leið í réttarsalVar dæmdur fyrir morð í Héraðsdómi Suðurlands.
Mynd: Víkingur

Þann 26. september 2025 var Lúkas Geir Ingvarsson dæmdur í 17 ára fangelsi fyrir morðið á Hjörleifi Hauki Guðmundssyni en morðið hefur verið nefnt Gufunesmálið í fjölmiðlum.

Lúkas hefur verið reglulega í sviðljósinu undanfarin ár fyrir glæpi og hegðun sína en ekki allir vita hver hann er eða hvaðan hann kemur.

Lúkas Geir er fæddur 28. júlí árið 2003 og er elstur þriggja systkina en faðir þeirra rak þekkt fyrirtæki í Reykjavík. Lúkas ólst upp að mestu leyti í miðbæ Reykjavíkur og Laugardalnum.

Fyrrum grunnskólafélagar Lúkasar sem Mannlíf ræddi við bera honum söguna vel að mestu leyti. Hann hafi verið nokkuð venjulegt barn sem hafði áhuga á tónlist og að vera með vinum sínum. Mikið hafi farið fyrir honum og hann hafi verið með „trúðastimpil“ á sér í gegnum skólagönguna. Hann hafi ekki verið ofbeldisfullur og yfirleitt ljúfur við annað fólk.

Lúkas lék í tveimur myndböndum sem tónlistarmaðurinn Mosi gerði

Skólafélagarnir segja þó að hann hafi breyst við lok grunnskóla en þá hafi hann mögulega byrjað að fikta við eiturlyfjanotkun. Ekki neinn viðmælandi Mannlífs sagðist þó hafa séð hann nota fíkniefni og eru eingöngu að draga ályktanir út frá hegðun hans.

Þeir segja einnig að undir lok grunnskóla og byrjun framhaldsskóla hafi Lúkas byrjað að umgangast annað fólk og hafi að einhverju leyti misst samband við fólk sem var með honum í grunnskóla.

Stunginn á Bankastræti Club

Lúkas komst fyrst í fréttirnar seint árið 2022 þegar hann var að skemmta sér á Bankastræti Club. Þá varð Lúkas, ásamt tveimur sínum, fyrir árás þar sem rúmlega 20 einstaklingar réðust inn og lömdu og stungu þá með hnífum.

„Svo bara kemur hópur af grímuklæddum mönnum bara rushar á okkur. Við héldum að þetta væru svona fimmtán þangað til lögreglan bara sagði við okkur: Svo kemur í ljós að þeir voru 27. Ég held þeir séu bara jealous því við erum með mikla athygli á okkur,“ sagði Lúkas við útvarpsmanninn Gústa B. í viðtali.

„Í flestum tilvikum þá veistu ekki að þú sért stunginn fyrr en þú sérð það sjálfur. Ég get sagt þér það að þessir drengir eru búnir að vera með stríð við okkur í svolítið góðan tíma. Því þeir vilja vera mennirnir. Þeir þurfa að vera 27 saman til að ná okkur þremur. Þetta eru bara skíthælar. Við vorum bara á latino-kvöldi,“ sagði hann einnig við Gústa um stunguna.

„Við erum bara þrír slakir að fá okkur drykk. Erum að fara á klósettið eða fara út og þá koma þeir allir,“ sagði Lúkas Geir þegar árásin var tekin fyrir í héraðsdómi. „Ég stend upp og sé að ég er allur blóðugur, það er bútur hangandi úr bakinu á mér“

25 einstaklingar hlutu dóm fyrir málið í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Héraðsdómur
Héraðsdómur Reykjavíkur25 hlutu dóm þar inni.
Mynd: Víkingur

Dæmdur fyrir líkamsárás meðan hann var í gæsluvarðhaldi

Á meðan Lúkas beið réttarhalda í Gufunesmálinu var hann dæmdur í fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með Tristani Breka Olsen en sú árás átti sér stað árið 2021.

Voru þeir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa í félagi, veist að manni, með því að sparka í bringu mannsins og með því að sparka í efri búk hans, en maðurinn féll í jörðina í kjölfar þessara sparka, og í framhaldinu stappaði Tristan Breki ofan á höfði fórnarlambsins er hann lá varnarlaus á jörðinni og þá gerðu báðir ákærðu tilraun til að sparka í hann þar sem hann lá liggjandi á jörðinni, allt með þeim afleiðingum að hann hlaut hrufl á enni og hægra handarbaki, höfuðkúpubrot, andlitsbeinabrot ásamt mari í vinstri gagnaugaheilableðli með mildri blæðingu og opið sár í hársverði.

Við yfirheyrslu hjá lögreglu neitaði Lúkas sök og sagði fórnarlambið hafa komið hlaupandi og dottið í götuna. Þegar Lúkasi var sýnd upptaka af árásinni hélt hann því fram að hann hafi verið að afstýra yfirvofandi árás fórnarlambsins.

Í dómum segir að árásin hafi verið fólskuleg og grafalvarleg og mildi að ekki fór verr.

Lúkas var á endanum dæmdur í sex mánaða fangelsi sem var skilorðsbundið til tveggja ára.

Bréfaskriftir Lúkasar

Það var þó ekki það eina sem gerðist á meðan Lúkas sat í gæsluvarðhaldi en á meðan því stóð yfir skrifaði Lúkas bréf til meðákærða í Gufunesmálinu, Matthíasar Björns Erlingssonar, þar sem Lúkas bað hann um að taka á alla sök í málinu. Bréfið komst þó aldrei til Matthíasar en samfangi fann bréfið, sem hafði verið skilið eftir fyrir Matthías, og kom því til yfirvalda.

Bréf Lúkasar

Blessaður, Matti minn

leiðinlegt hvernig þetta fór allt saman þetta átti aldrei að fara svona þykkir þetta mjög leitt vona þú hafir það sem best í einangrun, mér líður bara Gucci fíflast bara í vörðunum og borða vel, orðin 80 kg, Gym alla daga, usss, vona þér líði eins og mér ættum að losna úr einangrun á miðvikudaginn vonandi.

En núna er mjög mikilvægt, þú ert yngstur ég er orðinn 21 Bunn að tala við lögfræðinginn minn að þú verður taka þetta a þig, þú færð varla dom

Verður komin ut eftir 1 og hálft ar max og ég Lofa því. Kæmir líka út sem Legend en þetta er staðan og við auðvitað gerum þetta.

Þu þarft Nyjan Lögfræðing strax þinn er drasl. Vinur okkar uti er Buinn að græja það. en er ekki að fiflast i þer þu veist Hvað þarf þarf að gera elsku vinur

one love. Treysti a þig.

Kveikja í þegar ert búinn að lesa.

Aftan á bréfið var DON LUFRANO ritað en Lúkas hefur verið kallaður Luffro í gegnum árin.

Mættu óboðnir á skrifstofur fjölmiðla

Lúkas hefur verið gagnrýninn á umfjöllun fjölmiðla um sig og þá sem standa honum nærri en í nóvember 2023 mætti hann ásamt félögum sínum á skrifstofur íslenskra fjölmiðla.

Vildu þeir ræða við blaðamenn um hinn svokallaða „Latino-hóp“ sem Lúkas, ásamt öðrum, var sagður vera í. Töldu þeir framsetningu á þessu vera ósanngjarna og að þeir væru ekki hluti af neinum sérstökum hópi og notuðust ekki við neitt nafn til auðkenningar.

Samkvæmt upplýsingum Mannlífs voru þeir kurteisir og afslappaðir við þá blaðamenn sem þeir ræddu við.

Hvað tekur við?

Þremenningarnir sem sakfelldir voru fyrir morðið í Gufunesmálinu hafa allir áfrýjað dómi sínum til Landsréttar.

Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segist búast við því að þeir muni afplána tvo þriðju til að eiga kost á því að sækja um reynslulausn. Mögulega verði þeir fjögur til fimm ár inno á Litla-Hrauni.

„Það eru ekkert endilega tveir þriðju inni á Litla-Hrauni, það er bara í afplánun. Hve lengi þeir eru þar, finnst mér mynstrið vera jafnvel þannig að sá tími sé að styttast, að þeir séu að fara fyrr í opið fangelsi,“ sagði hún við Morgunblaðið.

Landsréttur
Mynd: Víkingur
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“
Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair
Fólk

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt
Innlent

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu
Myndir
Fólk

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“
Innlent

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“

Helgi Magnús kominn aftur á stjá
Fólk

Helgi Magnús kominn aftur á stjá

Þurfti að fara í röntgen eftir Röntgen
Innlent

Þurfti að fara í röntgen eftir Röntgen

Þórir Einarsson er fallinn frá
Minning

Þórir Einarsson er fallinn frá

Hnífaræningi hótaði fólki
Innlent

Hnífaræningi hótaði fólki

Notaði bíla eins og fótbolta
Innlent

Notaði bíla eins og fótbolta

Innlent

Hver er Lúkas Geir?
Nærmynd
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

Mannlíf varpar ljósi á son, bróður og dæmdan morðingja
Þurfti að fara í röntgen eftir Röntgen
Innlent

Þurfti að fara í röntgen eftir Röntgen

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt
Innlent

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“
Innlent

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“

Loka auglýsingu