
Stjórn Rauða krossins á Íslandi hefur ráðið Ingibjörgu Elínu Halldórsdóttur sem framkvæmdastjóra félagsins og mun hún hefja störf 1. maí næstkomandi en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Ingibjörg gegndi þar til nýverið stöðu deildarstjóra Rauða krossins við Eyjafjörð en undanfarna mánuði hefur hún starfað sem sérfræðingur í forsætisráðuneytinu.
„Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi enda á félagið, starfsfólk þess og sjálfboðaliðar, alveg sérstakan stað í hjarta mínu,“ segir Ingibjörg. „Ég geri mér á sama tíma fulla grein fyrir þeim gríðarstóru áskorunum sem eru fram undan nú á tímum töluverðrar ókyrrðar og óvissu í heimsmálunum.“
Nefnir Ingibjörg sem dæmi að mannúðarsamtök á borð við Rauða krossinn eigi í vök að verjast fjárhagslega. „Í því samhengi er gott að minna á að Rauði krossinn sinnir mikilvægu hlutverki í almannavörnum og neyðarviðbrögðum. Þar skiptir net sjálfboðaliða um allt land – og um allan heim – lykilmáli. Sjálfboðaliðar okkar eru til staðar í nærsamfélaginu, tilbúnir að veita stuðning og aðstoð þegar á þarf að halda.“

Komment