
Umræða um veðmálastarfsemi á Íslandi hefur aukist á síðustu árum, sérstaklega í kjölfar þess að erlend veðmálafyrirtæki hafa haslað sér völl hér á landi án þess að hafa tilskilin starfsleyfi.
Veðmálastarfsemi þykir umdeild í íslensku samfélagi og er það þá yfirleitt sett í samhengi við þann fjölda einstaklinga sem glíma við veðmálafíkn en sá fjöldi hefur aukist á undanförnum árum. Kveikur greindi til að mynda frá því í fyrra að Íslendingar eyði 36 milljörðum á ólöglegum veðmálasíðum.
Einn af þeim sem hefur tjáð sig um þetta málefni er Willum Þór Willumsson, forseti íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og fyrrum ráðherra.
„Það skiptir miklu máli að fyrirtæki sem bjóða upp á veðmál hafi skýra stefnu um ábyrga spilun og beini fólki ekki í hættulegan farveg. Á sama tíma og meirihluti þeirra sem veðja hafa stjórn á sinni spilun og nýta hana jafnvel í félagslegum tilgangi getum við ekki horft fram hjá dekkri hliðum hennar,“ skrifaði Willum í fyrra.
Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar, ræddi málið á Alþingi fyrr í dag.
Ræða Söndru í heild sinni
Virðulegi forseti.
Í dag langar mig að tala um veðmálasíður. Við þekkjum vel Lengjuna og Lottó sem viðurkennda veðmálastarfsemi. Þessi tekjustofn hefur um árabil runnið til íþróttafélaganna og styrkt íþróttastarf um allt land, allt frá barna- og unglingastarfsemi til afreksstarfs. Heimurinn hefur breyst og í dag eru fjölmargar vel þekktar alþjóðlegar veðmálasíður á borð við Betsson, Coolbet og bet365, svo dæmi séu tekin, öllum aðgengilegar á netinu og þúsundir landsmanna veðja þar reglulega. Munurinn á þessu tvennu er hins vegar sá að hver króna sem fer í gegnum alþjóðlegar veðmálasíður fer beint úr landi og ekki í fjárfestingu í samfélaginu né til íþróttafélaganna í landinu.
Spurningin sem við verðum að spyrja okkur er einföld: Er skynsamlegt að loka augunum fyrir þessari þróun og láta sem ekkert sé eða ætlum við að gera eitthvað í þessu? Ætlum við að viðurkenna raunveruleikann og setja skýrar reglur? Ef veðmálastarfsemi á netinu væri leyfð gætum við sótt hluta af því fjármagni og fjárfest í samfélaginu, rétt eins og lottótekjurnar, en allir sem hafa einhvern tímann unnið sem sjálfboðaliðar fyrir íþróttafélög í landinu vita hversu miklu máli þær skipta íþróttahreyfinguna. Fyrir þá sem ekki þekkja vel til innan hreyfingarinnar þá skiptir þetta gríðarlega miklu máli.
Forseti. Markmiðið yrði aldrei að auka fjárhættuspil. Markmiðið yrði að stýra því sem þegar er að gerast og tryggja að samfélag okkar njóti góðs af. Er ekki kominn tími til að við skoðum þetta af alvöru og hættum að loka augunum og leyfum íþróttafélögunum í landinu að njóta góðs af?

Komment