
Adolf Ingi Erlingsson er æfur vegna gjaldskyldu við Fjallsjökul sem Parka lausnir ehf. vakta. Margir taka undir með honum.
Síðustu ár hefur gjaldtaka fyrir bílastæði snaraukist um land allt og er nú sífellt erfiðara orðið að leggja bíl sínum án þess að þurfa að borga fyrir það.
Fyrrverandi íþróttafréttamaðurinn og nú fararstjórinn Adolf Ingi Erlingsson birti ljósmyndir á Facebook-hópinn Bakland ferðaþjónustunnar, sem sýna að Parka lausnir ehf. séu að rukka fyrir og vakta með myndavél. Við myndirnar skrifar Adolf Ingi: „Getur fólk bara ákveðið að rukka hvar sem er fyrir hvað sem er? Sami ónýti malarslóðinn og sama ómerkilega malarplanið.“

Þó nokkrir taka undir pirring Adolfs Inga en einn þeirra er leikarinn og fararstjórinn Hinrik Ólafsson sem skrifaði eftirfarandi athugasemd: „Þetta er skammarlegt og stjórnlaust með öllu.“
Þá birtir annar ljósmynd sem sýnir gjaldskylduskylti frá Parka við Múlagljúfur. Enn einn bætir við: „Í nafni gróða, í nafni græðgi og í nafni heimsku.“
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fólk kvartar yfir gjaldskyldu, hvort sem talað er um bílastæði íbúðabyggð eða við náttúruperlur Íslands, eða náttúrupassa.
Frægt er þegar Ögmundur Jónasson, þáverandi þingmaður Vinstri grænna, mótmæli og barðist gegn gjaldtöku á Geysissvæðinu, við Kerið og við Dettifoss árið 2014. Þá mótmæltu Héraðsbúar gjaldskyldu Isavia við flugvöllinn á Egilsstöðum, harðlega í fyrra, sem varð til þess að Isavia frestaði gjaldtökunni tímabundið en hóf síðan að rukka nokkru síðar. Landspítalinn þurfti einnig að fresta gjaldtöku við Hringbraut og Landakot vegna mótmæla starfsmanna fyrir tveimur árum.
Komment