Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir peningaþvætti og hafa milligöngu um vændi en það er Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra sem er ákærandi í málinu.
Maðurinn er sakaður um að hafa haft vændi að atvinnu með því að hafa í um ár frá október 2023 til 20. október 2024 haft atvinnu og tekjur af því að hafa milligöngu og aðstoða aðila sem voru að selja vændi á Akureyri og annar staðar á Íslandi. En milligangan fólst meðal annars í því að vera í samskiptum við vændiskaupendur, skipuleggja ferðir vændisfólks til landsins og panta hótelherbergi fyrir vændisstarfsemina.
Þá er hann einnig ákærður fyrir peningaþvætti með því að hafa frá 22. október 2023 til 22. október 2024, tekið við, nýtt og aflað sér ávinnings að fjárhæð 5.681.787 krónur, með vændi annarra, eða annarri ólöglegri starfsemi, og meðal annars umbreytt slíkum ávinningi og flutt hann og geymt, en ávinningurinn er talinn stafa aðallega af því að ákærði skipulagði og hafði milligöngu milli vændisfólks og kaupenda vændis og sá um að umbreyta hagnaði af starfseminni í lögmætt fjármagn með því til dæmis að leggja peningana inn á eigin bankareikninga og nýta sér spilakassa Happdrættis Háskóla Íslands til peningaþvættis.
Auk þessa voru haldlagðar hjá ákærða 175.280 krónur þegar hann var handtekinn af óútskýrðum fjármunum eins og það er orðað í kærunni.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta upptöku á fjárhæð kr. 5.681.787.
Málið verður tekið fyrir þann 7. maí í Héraðsdómi Norðurlands


Komment