1
Minning

Syrgja Víglund unga og stofnað til söfnunar

2
Innlent

Haraldur leigir út tíu íbúðir og lítur á sig sem félagsmálaþjónustu

3
Fólk

Dómsmáli Eddu Falak lokið

4
Innlent

Matgæðingur fluttur á bráðamóttökuna

5
Innlent

Maður með stóran steikarhníf á leikskóla

6
Innlent

Fjórir vilja Breiðholt

7
Heimur

Liverpool-ökuníðingurinn hristi höfuðið þegar saksóknari lýsti verknaði hans

8
Innlent

„Smám saman kemur umfangið í ljós“

9
Innlent

Lögreglan staðfestir andlát mannsins

10
Fólk

Rokkdrottning selur í 101

Til baka

Liverpool-ökuníðingurinn hristi höfuðið þegar saksóknari lýsti verknaði hans

„Yndislegur maður“, segja nágrannar.

Paul Doyle
Paul DoylePaul Doyle hristi höfuðið í rétti í dag.

Paul Doyle, sem er grunaður um að hafa ekið á mannfjölda á sigurgöngu Liverpool, mun mæta aftur fyrir dóm þann 14. ágúst þar sem kemur í ljós hvort hann játar sök og undirbúningur hefst fyrir réttarhöld.

Í réttarfundi í Liverpool í morgun hristi 53 ára gamli Doyle höfuðið í vitnastúkunni þegar saksóknari sagði dómaranum að hann hefði „af ásetningi ekið á mannfjöldann“ og „notað bifreiðina sem vopn“. Doyle hefur verið ákærður fyrir sjö brot í tengslum við áreksturinn á sigurgöngunni.

Lögreglan í Merseyside greindi áður frá því að 79 manns hefðu slasast þegar bifreið ók inn í stuðningsmenn á Water Street um klukkan sex síðdegis á mánudag. Þegar ákærurnar voru opinberaðar í gær voru sjö manns enn á sjúkrahúsi.

Doyle er sagður hafa verið giftur konu sinni í 20 ár og er faðir þriggja ungra drengja á unglingsaldri. Fjölskyldan býr í einbýlishúsi með fjórum svefnherbergjum sem metið er á um 300.000 pund. Myndir á samfélagsmiðlum sýna fjölskylduna njóta frís á stöðum á borð við Disneyland í Flórída, Dubai og á ýmsum sólarströndum.

Óljóst er nákvæmlega hvað Doyle starfar við, en hann hefur gegnt ýmsum stjórnunarstöðum sem netöryggisráðgjafi, þar á meðal hjá heilbrigðisstofnun (NHS Trust). Samkvæmt LinkedIn-síðu hans er hann fyrrverandi sérsveitarmaður hjá breska sjóhernum (Royal Marine Commando) og talið er að hann starfi nú í netöryggibransanum.

Eftir að handtaka hans og nafn voru opinberuð hafa nágrannar lýst Doyle sem „indælum manni“ og „fjölskyldumanni“. Hissa íbúar í rólegri botnlangagötu þar sem hann býr með konu sinni og börnum sögðu við Mirror: „Þetta meikar bara engan sens.“

Mirror fjallaði um málið.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Landspítalinn
Innlent

Einn liggur þungt haldinn á bráðamóttöku eftir líkamsárás

Raleigh
Myndband
Heimur

Tveir létust í skothríð í heimahúsi í Bandaríkjunum

katarina
Myndir
Fólk

Rokkdrottning selur í 101

Ólöf Kristín Sívertsen forseti Ferðafélags Íslands
Peningar

Hefur litlar áhyggjur af gjaldtöku við náttúruperlur

Ólafur Ágúst Hraundal
Skoðun

Ólafur Ágúst Hraundal

Virðing fanga mæld í excel-skjali

býflugur
Heimur

250 milljónir býflugna sluppu eftir slys

Jóhanna Björg
Sport

Jóhanna Björg vill verða forseti

Loka auglýsingu