
NASA hefur birt fyrstu myndina sem tekin hefur verið af bakhlið tunglsins. Myndin var tekin í ferð Artemis II geimferðarinnar umhverfis tunglið.
Myndin, sem tekin var úr Orion-geimfarinu, sýnir augnablikið þegar jörðin hverfur niður fyrir sjóndeildarhring tunglsins og gefur geimförunum innsýn í bakhlið þess. Þetta er fyrsta mannaða tunglferðin í meira en 50 ár.
Geimfararnir hafa verið fjær jörðinni en nokkur maður áður, eða í 406.771 kílómetra fjarlægð, og slá þar með fyrra met sem áhafnarmeðlimir Apollo 13 áttu.
Þegar geimfarið fór bak við tunglið rofnaði samband við jörðina í um 40 mínútur, samkvæmt sænsku geimferðastofnuninni. Þegar Orion kom aftur fram hinum megin náðist samband á ný og jörðin reis aftur yfir sjóndeildarhring tunglsins.
Ferðin er jafnframt fyrsta skiptið sem nýja Orion-geimhylkið er prófað með mönnum um borð. Áætlað er að fjórir geimfarar verði alls tíu daga í ferðinni.
Gert er ráð fyrir að Artemis-leiðangurinn lendi í Kyrrahafinu á föstudag.

Komment