1
Heimur

Fjögurra barna faðir fannst látinn í klettasprungu á Spáni

2
Menning

Sigurlíkur VÆB hafa aldrei verið betri

3
Heimur

Johnny Depp mætti óvænt á veitingastað á Tenerife

4
Innlent

Sveinbjörn játaði líkamsárás fyrir dómi

5
Fólk

Anna tekur fulla ábyrgð á sumarblíðunni á Íslandi

6
Fólk

Skáld selur krúttíbúð

7
Menning

Alþjóðleg samtök síonista hvetja fólk til að kjósa Ísrael í kvöld

8
Innlent

Unglingur kveikti í grunnskóla

9
Heimur

Stofnandi Ben & Jerry’s handtekinn við mótmæli á Bandaríkjaþingi

10
Innlent

Ný kynfræðsluhandbók borgarinnar tekur mið af inngildingu

Til baka

Njáll Torfason er látinn

|

Njáll Torfason aflraunamaður lést þann 1. apríl, á Maspalomas á Kanaríeyjum, 75 ára að aldri.

Njáll fæddist 28. febrúar 1950 en foreldar hans voru Torfi Bryngeirsson, afreksmaður í frjálsum íþróttum og Jóhanna Pétursdóttir húsfreyja.

Fram kemur í frétt mbl.is um andlátið að Njáll hafi unnið við ýmis störf um ævina, stundaði sjómennsku um árabil, starfaði einnig sem heilari, nuddari og rak hótel og söluskála í Breiðdalsvík um tíma, þar sem hann bjó með konu sinni, Kristínu.

Njáll varð þjóðþekktur fyrir margskonar aflraunir og sló hann þar nokkur Íslandsmet. Hann keppti og kom fram á sýningum bæði hér á landi og erlendis.

Njáll bjó yfir einstökum hæfileikum en meðal þeirra aflrauna var að draga bíla og rútu með einungis löngutöng og einnig gat hann losað sig úr fjötrum, gengið berfættur á glerbrotum og glóðum og lyft níðþungum hlutum, þar á meðal 278 kílóa Laufássteini með annarri hendi. Þá virtist hann nota hugarorkuna til þess að festa á sig hluti, til dæmis úr postulíni og járni. Þá er einnig þekkt þegar hann reif tíu símaskrár í sundur á 16 sekúndum.

Hann starfaði í Sálarrannsóknarfélagi Íslands og tók til að mynd að sér að reka óvætti úr húsum en í viðtali við Morgunblaðið árið 2013 sagðist hann aldrei hafa kallað sig miðil en að hann væri þó skyggn.

Njáll giftist þrisvar sinnum en eftirlifandi eiginkona hans er Kristín G. Ársælsdóttir, fædd 1953. Þau hafa verið búsett á Kanaríeyjum undanfarin ár. Dóttir þeirra er Jóhanna, fædd 1982 og sonur Kristínar er Einar Geirsson, fæddur 1972. Njáll eignaðist tvö börn með Aðalheiði L. Aradóttur, fædd 1951, þau Arnheiði Hönnu, fædd 1970 og Njál Heiðar, fæddur 1972. Börn Njáls og Kolbrúnar Björnsdóttur, fædd 1952, eru einnig tvö, þau Jón Björn Njálsson, fæddur 1974 og Harpa Hrund Bjarnadóttir, fædd 1978. Barnabörnin eru 16 og eitt barnabarnabarn.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Björn Leví Gunnarsson
Skoðun

Björn Leví Gunnarsson

Að svæfa mál í nefnd - Að vera þingmaður - 4. kafli

Lögreglan, ljós
Innlent

Unglingur kveikti í grunnskóla

Mannlíf lógó
Grein

Tilkynning: Nýtt og breytt Mannlíf

img_1382_custom
Innlent

162 ný leikskólapláss í Reykjavík

Fiskeldi
Landið

Mikill seiðadauði setti mark sitt á afkomu Kaldvíkur

Johnny Depp
Heimur

Johnny Depp mætti óvænt á veitingastað á Tenerife

Jón Óttar Ólafsson
Slúður

Ari Eldjárn hitti Jón Óttar