1
Innlent

Gæsluvarðhaldi yfir Margréti Löf aftur framlengt

2
Innlent

Líkamsárás í Hafnarfirði

3
Pólitík

Halla Tómasdóttir nær launum Donalds Trump

4
Heimur

Síðasta myndin af týnda Skotanum birt

5
Innlent

Kæra vegna líkamsárásar á FM95BLÖ tónleikunum komin fram

6
Pólitík

Ráðherrar stefna í mikla launahækkun eftir stór orð í stjórnarandstöðu

7
Heimur

Vegfarandi hættulega slasaður eftir árekstur við hjólreiðamann á Kanaríeyjum

8
Heimur

Yfirgefinn bóndabær lykilsvæði í nýrri leit að Madeleine

9
Heimur

Dómari veitir Osment annað tækifæri

10
Fólk

Gummi Kíró upplifði vanlíðan sem unglingur

Til baka

Ný leit vegna hvarfs Madeleine McCann hefst á morgun

Átján ár liðin frá hvarfi Maddie litlu.

Frá fyrri leit að Maddie
Frá fyrri leit að Maddie litluÁ morgun er fyrirhuguð ný leit að líki Maddie litlu.
Mynd: FILIPE AMORIM/AFP

Þýska lögreglan, sem rannsakar hvarf Madeleine McCann, hefur farið fram á nýjar leitir sem eru fyrirhugaðar á svæðinu milli Praia da Luz, þar sem stúlkan hvarf þriggja ára að aldri, og húss þar sem aðalsakborningurinn Christian Brueckner bjó áður.

Maddie
Madeleine McCannMaddie væri 21 árs ef hún væri á lífi.

Heimildarmaður með góð tengsl innan portúgölsku lögreglunnar staðfesti að aðgerðir vikunnar væru áætlaðar að hefjast á morgun, þó tímasetningin ráðist af því hversu mikill undirbúningur þurfi að fara fram áður.

Heimildarmaðurinn sagði: „Um verður að ræða leit á landi eingöngu. Aðalmarkmiðið er að leita að vísbendingum um lík Madeleine.“

Leitirnar fara fram í grennd við staðinn þar sem Madeleine sást síðast árið 2007. Þá hvarf hún úr orlofshúsi fjölskyldu sinnar í Praia da Luz þann 3. maí.

Í apríl samþykktu bresk stjórnvöld að veita meira en 100.000 pund í viðbótarfjármögnun fyrir rannsóknarlögreglumenn í Scotland Yard sem rannsaka málið.

Heimildir innan innanríkisráðuneytisins segja að veitt hafi verið allt að 108.000 pund í rannsóknina, sem gengur undir heitinu „Operation Grange“, fyrir fjárlagaárið 2025–2026. Vitað er að rannsóknarteymið samanstendur nú af yfirrannsóknarlögreglumanni, rannsóknarlögreglumanni og einum starfsmanni lögreglunnar.

Fréttirnar um nýjustu leitirnar birtast tæpum mánuði eftir að fjölskylda Madeleine minntist 18 ára afmælis hvarfs hennar í maí síðastliðnum.

Í yfirlýsingu sem fjölskyldan sendi frá sér síðasta mánuð kom fram að hún væri „óbugandi í leitinni að öllum mögulegum svörum“. Þar sagði einnig:

„Sama hversu nálægt eða langt í burtu hún er, þá er hún alltaf hér með okkur, á hverjum degi, en sérstaklega á sérstaka deginum sínum. Við höldum áfram að minnast hennar sem þá fallegu og einstöku manneskju sem hún er. Við söknum hennar.“

Fyrri uppgröftur Scotland Yard var byggður á þeirri kenningu að Madeleine hefði látist í innbroti og lík hennar hefði verið falið í nágrenninu. Engar sannanir fundust þó sem leiddu í ljós hvar stúlkan væri.

Í minni aðgerð í júlí 2020 leituðu portúgalska lögreglan og slökkvilið í þremur brunnum að líkamsleifum Madeleine en fundu engin ummerki.

Leitirnar nú eru fyrstu leitaraðgerðir í Portúgal í rúm tvö ár. Síðasta umfangsmikla leit var í maí 2023 við Arade-stíflu, afskekktan stað sem hafði verið nefndur „litla paradísin“ hans Christian Brueckner. Sú leit bar engin árangur.

Þetta voru jafnframt fyrstu stóru leitirnar í Portúgal í níu ár, síðan í júní 2014 þegar bresk lögregla fékk leyfi til að grafa á tilteknum svæðum í Praia da Luz með aðstoð líkleitarhunda og jarðskanna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Mosfellsbaer
Innlent

Sjúkrabíll sendur í Mosfellsbæ vegna vinnuslyss

Rijksmuseum
Heimur

200 ára gamall smokkur til sýnis

Ísland KSÍ
Sport

Tíu leikir í röð án sigurs

Ríkisstjórn Íslands Inga Sæland
Pólitík

Ráðherrar stefna í mikla launahækkun eftir stór orð í stjórnarandstöðu

Árni Þór Sigurðsson
Innlent

Alger umskipti Árna í Evrópumálum: „Brýnt að Ísland hugi að stöðu sinni“

shutterstock_2251109949
Heimur

Vegfarandi hættulega slasaður eftir árekstur við hjólreiðamann á Kanaríeyjum

Loka auglýsingu