Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast frá klukkan 17:00 síðdegis og fram til klukkan 05:00 í nótt, samkvæmt dagbók hennar.
Alls voru 52 mál skráð í kerfum lögreglu á tímabilinu, en listinn er ekki tæmandi.
Sex einstaklingar voru handteknir, grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Þá voru tveir ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðan akstur.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa


Komment