Dómsmálaráðherra hefur sett reglugerð um nýtingu loftfara og skipa Landhelgisgæslu Íslands í verkefnum sem falla utan lögbundinna og samningsbundinna verkefna stofnunarinnar en greint er frá þessu í tilkynningu stjórnvalda.
Reglurnar eru settar með það að markmiði að tryggja gagnsæi, ábyrgð og skýra umgjörð um slíka nýtingu.
„Samkvæmt reglunum er heimilt að nýta loftför og skip Landhelgisgæslunnar í tengslum við opinberar skyldur eða verkefni stjórnvalda, svo sem vegna óvæntra atburða sem krefjast skjótra flutninga, formlegra athafna sem ekki er hægt að mæta með öðrum hætti, alþjóðasamstarfs, forvarnarstarfs, fræðslu og kynningar á björgunartækjum ríkisins, sem og í góðgerðarverkefnum. Ávallt er skilyrði að hagkvæmni sé gætt og að nýtingin hafi ekki áhrif á getu stofnunarinnar til að sinna lögbundnu hlutverki sínu.
Landhelgisgæslan metur hverju sinni hvort skilyrði fyrir slíkri notkun séu uppfyllt og heldur skrá yfir allar samþykktar beiðnir. Þá ber stofnuninni að upplýsa dómsmálaráðuneytið um allar slíkar ferðir, tilgang þeirra og áhrif á starfsemi,“ segir meðal annars í tilkynningunni.
Ráðherra skutlað í hestaferð
Í tilkynningu stjórnvalda er tekið fram að það sé sérstaklega kveðið á um að öll einkanot af loftförum og skipum Landhelgisgæslunnar séu óheimil en árið 2020 hlaut Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þáverandi dómsmálaráðherra, mikla gagnrýni fyrir þyrluferð sem hún fór í.
Var hún þá sótt af þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar hún var í hestaferð á Suðurlandi til þess að fara á samráðsfund Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra vegna COVID-19 faraldursins en fundurinn var haldinn í Reykjavík. Áslaug Arna var ekki á meðal þeirra sem fluttu ræður á fundinum. Samkvæmt heimildum Heimildarinnar sat hún þó og hlustaði á ræður, en yfirgaf fundinn þegar hópvinna hófst.
Var hún svo í kjölfarið flutt aftur í hestaferðina af þyrlu Landhelgisgæslunnar.


Komment