Skemmtikrafturinn og sjónvarpsstjarnan Patrekur Jaime hefur stofnað nýtt fyrirtæki en greint er frá þessu í Lögbirtingablaðinu.
Félagið heitir Jaime Entertainments ehf.
Patrekur er skipar stjórn félagsins og er varamaður hans Haraldur Skjóldal Kristjánsson. Þá er Patrekur einnig framkvæmdastjóri félagsins og fer með prókúruumbð.
Tilgangur þess er auglýsingar á samfélagsmiðlum og skemmtanir.
Íris Líf Stefánsdóttir er skoðunarmaður Jaime Entertainments ehf.
Patrekur er sennilega þekkastur fyrir veru sína í raunveruleikaþáttunum Æði sem sýndir voru á Stöð 2 við miklar vinsældir.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa


Komment