1
Fólk

Bjarni Ben nýtur lífsins með „Draumaliðinu“ í Flórída

2
Landið

Halldóra Dagný segir upp sem skólastjóri

3
Fólk

Söngkonan Birna Berg í kröppum dansi á Mosfellsheiði

4
Skoðun

Kæra borgarstýra

5
Heimur

Meghan deilir sjaldséðum myndum af Boga og Lísabetu um páskana

6
Peningar

Hafdís Björg stofnar fyrirtæki

7
Peningar

Tæplega 40 þúsund mótmæla kílómetragjaldi

8
Fólk

Rándýr draumaeign í gamla Vesturbænum til sölu

9
Heimur

Tori Spelling og fjögur börn hennar flutt á sjúkrahús eftir harðan árekstur

10
Innlent

Lögreglan í Litáen tjáir sig ekki um eftirlýstan mann á Íslandi

Til baka

Pétur Óskar á hraðri uppleið í leiklistarheiminum

Hefur fundið meira rými til að þróast og grípa tækifæri erlendis

Pétur Óskar Sigurðsson
Pétur Óskar SigurðssonGerir það gott í Þýskalandi
Mynd: Aðsend

Leikarinn Pétur Óskar Sigurðsson hefur heldur betur verið að vekja á sér athygli í Þýskalandi en hann fór nýlega með stórt hlutverk í Das Traumschiff, sem er einn af vinsælustu sjónvarpsþáttum landsins.

Þátturinn gerist á Íslandi þar sem íslensk náttúra og þjóðsögur gegna mikilvægu hlutverki. Pétur leikur Jón, dularfullan huldumann sem leiðir aðalpersónuna inn í dýpri skilning á sjálfri sér. Þau laðast að hvort öðru, sem mótar andrúmsloft sögunnar töluvert.

Þá lék hann einnig í Tatort fyrir stuttu síðan en sú sería hefur verið í sýningu í rúm 50 ár í Þýskalandi.

Mannlíf ræddi við Pétur um lífið í Þýskalandi, ferilinn og framtíðina.

„Það er í raun ekki mikill munur,“ sagði Pétur þegar hann var spurður út í muninn á því að vinna á Íslandi og í Þýskalandi. „Ég vinn mest í Þýskalandi og nálgun þeirra á leiklist er svipuð og hjá okkur. Fagmennskan er mikil og vel er hugað að smáatriðum, sem ég kann vel að meta. Settin eru oft stærri og umgjörðin meiri, en kjarninn er alltaf sá sami, að ná tengingu við mótleikara, vera í núinu og treysta ferlinu. En það sem er fallegt við Ísland er líka það sem getur verið krefjandi. Þetta er lítið og samofið kerfi þar sem tengsl skipta oft miklu máli. Í stærri borgum eins og Berlín hef ég fundið meira rými til að þróast og grípa tækifæri á eigin forsendum, sem hentar mér vel á þessum tímapunkti,“ en Pétur er sennilega þekktastur á Íslandi fyrir leik sinn í Ófærð. Einnig hefur hann leikið í þáttunum Flamingó bar og myndunum Grimmd og Andið eðlilega.

Vill bæta sig með hverju hlutverki

Þrátt fyrir velgengni erlendis segist hann ekkert endilega sækjast í hlutverk í útlöndum.

„Fyrir mér skiptir mestu máli að vera að vinna að einhverju sem hefur einhvern tilgang og með fólki sem ég tengi við. Undanfarin ár hafa einfaldlega fleiri og stærri tækifæri komið upp í Þýskalandi. Þegar ég er að íhuga að taka að mér hlutverk þá er ég með eina reglu fyrir sjálfan mig, sama hvort hlutverkið sé lítið eða stórt - er ég að fara læra eitthvað af þessu og er ég að fara að bæta mig sem leikari.“

Pétur hefur þó ekki aðeins leikið í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum en hann kom einnig fram í tölvuleiknum Hellblade: Senua's Sacrifice, sem gerðist á Íslandi og sækir mikið í norræna menningu. Leikurinn var einn sá vinsælasti sem kom út árið 2017 og hlaut mörg virt verðlaun.

„Það var mjög skemmtileg reynsla. Ég man sérstaklega eftir casting-ferlinu. Ég átti að senda inn prufur þar sem ég lék ýmsar verur, meðal annars tröll. Ég var staddur í Lúxemborg á þeim tíma og fór út í skóg að taka upp, öskrandi línur eins og „The TROLLS are coming“. Það var dálítið sérstakt að standa einn í skógi og gera þetta, vitandi að einhver gæti verið að hlusta og velta fyrir sér hvað Í ósköpunum væri eiginlega í gangi. Þegar ég labbaði heim úr skóginum hugsaði ég líka bara, hver ertu eiginlega, þetta er bara lífið þitt,“ sagði leikarinn um ferlið í kringum tölvuleikinn.

Framtíðin á Íslandi og Þýskalandi

Spurður um framtíðina segist hann sjá fyrir sér að vera á Íslandi á sumrin og Berlín á veturna ásamt „stuttum stoppum á heitari stöðum inn á milli“ eins og leikarinn orðar það.

„Mig langar að halda áfram að þróast sem leikari og vinna í seríum og kvikmyndum. Á sama tíma legg ég meiri áherslu á, þessi misserin, að vera sáttur við sjálfan mig, óháð verkefnum. Maður getur auðveldlega fest sjálfsmyndina við það að finnast maður bara vera eitthvað þegar maður er í verkefni - að vinna. Ég er líka bara flottur þó ég sé á leið út í Nettó og það er ekkert að gera hjá mér,“ segir Pétur.

En hvernig fórstu að því að koma þér á framfæri í Þýsklandi?

„Ég lærði við skóla sem heitir Cours Florent í París þar sem við settum á laggirnar þýska leiklistardeild. Í tengslum við það fór ég til Berlínar og sú ferð kveikti áhuga minn á að vinna þar. Ég er einnig fæddur og uppalinn í Lúxemborg til tíu ára aldurs og tala því þýsku. Sem barn horfði ég mikið á þýskt sjónvarp með fjölskyldunni, og það er sérstakt að vera nú sjálfur að vinna í því umhverfi og með þessum leikurum sem maður horfði á í gamla daga. Ég komst svo í samband við umboðsskrifstofu í Berlín í gegnum vinkonu úr skólanum og hef unnið með þeim síðan.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Seldu fíkniefni á Barónsstíg
Innlent

Seldu fíkniefni á Barónsstíg

Mennirnir játuðu báðir sök
Handsprengja fannst í plastpoka í Malmö
Heimur

Handsprengja fannst í plastpoka í Malmö

Tugir þúsunda horfðu á útför Davíðs Oddssonar
Innlent

Tugir þúsunda horfðu á útför Davíðs Oddssonar

Landsliðskona Íslands ólétt
Sport

Landsliðskona Íslands ólétt

Fundu meira en tonn af eiturlyfjum undir káli
Myndband
Heimur

Fundu meira en tonn af eiturlyfjum undir káli

Kennari stunginn til bana af nemanda
Heimur

Kennari stunginn til bana af nemanda

19 ákærðir fyrir mansal á ungbörnum
Heimur

19 ákærðir fyrir mansal á ungbörnum

Lík fannst á reki undan Tenerife
Heimur

Lík fannst á reki undan Tenerife

Úkraínuher drap hjón og barn þeirra í drónaárás
Heimur

Úkraínuher drap hjón og barn þeirra í drónaárás

Einn látinn og margir slasaðir eftir háhraðalestarslys
Heimur

Einn látinn og margir slasaðir eftir háhraðalestarslys

Píratar lyfta hulunni af nýju merki flokksins
Pólitík

Píratar lyfta hulunni af nýju merki flokksins

Ung kona dæmd fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot
Innlent

Ung kona dæmd fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot

Fólk

Pétur Óskar á hraðri uppleið í leiklistarheiminum
Viðtal
Fólk

Pétur Óskar á hraðri uppleið í leiklistarheiminum

Hefur fundið meira rými til að þróast og grípa tækifæri erlendis
Rándýr draumaeign í gamla Vesturbænum til sölu
Myndir
Fólk

Rándýr draumaeign í gamla Vesturbænum til sölu

Bjarni Ben nýtur lífsins með „Draumaliðinu“ í Flórída
Fólk

Bjarni Ben nýtur lífsins með „Draumaliðinu“ í Flórída

Söngkonan Birna Berg í kröppum dansi á Mosfellsheiði
Myndband
Fólk

Söngkonan Birna Berg í kröppum dansi á Mosfellsheiði

„Algjör stemning“ hjá Írisi í Vatnaskógi
Viðtal
Fólk

„Algjör stemning“ hjá Írisi í Vatnaskógi

Loka auglýsingu