
Bandaríski rapparinn Lil Tjay var handtekinn í Flórída á mánudagskvöld eftir að hafa komið að slagsmálum sem áttu sér stað skömmu áður en skotárás varð þar sem rapparinn Offset særðist. Þetta kemur fram í umfjöllun TMZ.
Samkvæmt upplýsingum frá lögregluyfirvöldum var hinn 24 ára gamli Tjay handtekinn og færður í fangageymslu, þar sem hann var skráður fyrir minniháttar brot, svokallað „disorderly conduct“. Honum var jafnframt gert að greiða 500 dala tryggingu.
Lögreglan segir að Tjay hafi verið viðriðinn slagsmál sem brutust út áður en skotárásin átti sér stað. Annar einstaklingur var einnig handtekinn á vettvangi, en hefur ekki verið ákærður að svo stöddu.
Skotárásin átti sér stað við Hard Rock spítalvíti og hótel í Flórída, þar sem Offset varð fyrir skoti. Talsmaður hans staðfesti að hann hafi verið fluttur á sjúkrahús og væri í stöðugu ástandi, undir nánu eftirliti.
Í yfirlýsingu lögreglu kemur fram að einn einstaklingur hafi hlotið áverka sem ekki væru lífshættulegir og hafi verið fluttur á sjúkrahús. Tveir einstaklingar eru í haldi lögreglu á meðan rannsókn málsins stendur yfir. Rekstur hótelsins og spilavítisins komst fljótt í eðlilegt horf og engin hætta er talin steðja að almenningi.
Lögmaður Tjay, Dawn Florio, sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem hún hafnaði fullyrðingum um að skjólstæðingur hennar hefði komið að skotárásinni. Hún lagði áherslu á að Tjay hafi hvorki verið skotinn né ákærður fyrir skotárás, og að slíkar fréttir væru rangar.

Komment