Glæsilegt og vel staðsett 5–6 herbergja endaraðhús við Búland 1 í Reykjavík hefur verið sett á sölu.
Um er að ræða eign á eftirsóknarverðum stað við Fossvogsdal sem hentar vel fyrir fjölskyldur, með fjölbreyttum útivistarmöguleikum í næsta nágrenni.
Húsið er alls 224,7 fermetrar að stærð, þar af er bílskúr 24,9 fermetrar. Eignin var byggð árið 1969 en hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, bæði að innan sem utan, að sögn eigenda.
Húsið er afar sjarmerandi og einkennist af mikilli lofthæð yfir setustofu, stórum gluggum sem snúa til suðurs og fallegum arni sem setur svip sinn á rýmið. Þá hefur eldhús, þvottaherbergi og baðherbergi verið endurnýjað og gólfhiti settur í þau rými.
Lóðin er falleg og gróin með afgirtum hluta og viðarverönd til suðurs sem býður upp á skjólgott útivistarsvæði.
Staðsetningin þykir afar góð, með greiðu aðgengi að vinsælum göngu- og hjólaleiðum sem liggja um Fossvogsdalinn og tengjast meðal annars Elliðaárdal og Nauthólsvík.
Ásett verð eignarinnar er 180 milljónir króna.


Komment