
Umfangsmiklar lokanir verða á hluta Sæbrautar frá kl. 22 í kvöld þegar ný göngu- og hjólabrú verður hífð upp í heilu lagi og komið fyrir á stigahúsum sem reist hafa verið við Dugguvog og Snekkjuvog en þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Þar er sagt frá því að samtímis verði settar upp hæðarslár sitt hvoru megin við nýju brúna þar sem hæðin er takmörkuð við 4,8 metra og framvegis verði það. Vinnan fer fram að næturlagi til að hafa sem minnst áhrif á umferð. Stefnt er á að opna aftur fyrir umferð á þessum kafla kl. 6 í fyrramálið.
Bætir umferðaröryggi verulega
„Nýja göngubrúin er um miðja vegu milli gatnamóta Sæbrautar við Súðavog annars vegar og Kleppsmýrarvegs hins vegar. Með henni verður til ný gönguleið milli Dugguvogs við Tranavog og Snekkjuvogs.“
Brúnni er ætlað að bæta umferðaröryggi að sögn Vegagerðarinnar verulega fyrir vegfarendur milli nýrrar Vogabyggðar og Vogahverfis, ekki síst fyrir skólabörn í Vogaskóla.
„Vegagerðin beinir þeim tilmælum til verktaka og flutningafyrirtækja að kynna þessar hæðartakmarkanir fyrir sínu starfsfólki. Ástæða er til þess að hvetja ökumenn stærri bíla til að setja niður palla á vörubílum, pakka saman bílkrönum og svo framvegis, svo ekki komi til óhappa eða slysa vegna hæðartakmarkananna.“
Þegar brúin verður komin á sinn stað heldur vinna við stigahúsin áfram samkvæmt tilkynningunni. „Gengið verður frá tengingum milli brúar og stigahúsa, sett upp lýsing og myndavélakerfi, gengið frá jarðvegi við stigahúsin og göngu- og hjólastígar malbikaðir. Lyftur verða síðan settar upp við báða brúarenda um næstu mánaðamót.“
Vegagerðin segir að stefnt sé að því að brúin verði tekin í notkun í júní.
Komment