Bartosz Jan Chyrek hefur verið dæmdur í fangelsi af Héraðsdómi Reykjaness en dómur þess efnis var birtur fyrir stuttu.
Hann var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 24. apríl 2025 staðið að innflutningi á samtals 2.000 ml af amfetamínbasa, með styrkleika 44-53%, ætluðum til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti ákærði í tveimur áfengisflöskum til Íslands sem farþegi með flugi frá Gdansk í Póllandi til Keflavíkurflugvallar.
Þá var hann einnig ákærður fyrir brot gegn lögum um um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum, með því að hafa haft í vörslum sínum og staðið að innflutningi á 50 ml af Dromostanolone (Propionate), 30 ml af Testoseron, 30 ml af Trenbolon, 84 stykkjum af Anastrol töflum, 20 stykkkjum af Somatropin stungulyfi, 30 stykkjum af óþekktum steratöflum og 4 stykkjum af óþekktu læknislyfi sem hann flutti í farangurstöskum.
Á vin sem á bát
Hann neitaði sök í amfetamínmálinu og sagðist ekki hafa vitað um innihaldið í áfengisflöskunum heldur hafi hann verið notaður af félaga sínum, sem sé hinn raunverulegi sökudólgur. Chyrek sagðist hafa komið til landsins til að veiða.
„Ákærði var spurður hvar hann hefði ætlað að veiða á Íslandi og svaraði að hann hefði ætlað að veiða þorsk í Keflavík, […]. Hann hefði komið þar fyrir ári og veitt vel. Vinur sinn hefði átt lítinn bát og þeir hefðu hugsað sér að fara aðeins á honum. Spurður hvað hann hefði ætlað að gera við aflann sagðist ákærði hafa ætlað að veiða fisk og sleppa honum,“ stendur meðal annars í dómnum.
Hann var á endanum dæmdur í fangelsi í tvö og hálft ár og er dómurinn óskilorðsbundinn.


Komment