
Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur segir að Donald Trump hafi tekið skýra stefnubreytingu og sé nú orðinn „stríðsforseti“, sem ólíklegt sé að dragi sig í hlé frá hernaðarlegum aðgerðum á næstunni.
Í Facebook-færslu sem hann birti nýlega veltir Valur því upp að Trump hafi á fyrra kjörtímabili sínu verið tregari til að beita hervaldi, meðal annars vegna reynsluleysis í opinberum embættum.
„Trump er orðinn stríðsforseti og hæpið að hann dragi í land úr þessu. Á fyrra kjörtímabili var hann tregur til að fyrirskipa árásir, hafði aldrei gengt opinberu embætti eða ráðið yfir lífi og dauða. En nú hefur hann yfirstigið eigin hömlur,“ skrifar hann.
Valur segir að aðstæður hafi breyst og að forsetinn hafi nú áttað sig á umfangi valds síns.
„Það er ofboðslegt að geta ráðið yfir mesta herveldi heims og látið það gera nánast hvað sem er og enginn ástæða til að hann muni ekki halda því áfram,“ skrifar hann.
Segir hervald orðið lykiltæki
Í færslunni bendir Valur á að ýmsir þættir hafi haft áhrif á þróunina, meðal annars pólitísk átök innanlands og takmarkanir sem Trump hafi mætt.
„Auðvitað skipta Epstein skjölin máli en ekki síður það að hæstiréttur bannaði honum að ráðskast með heiminn með því að setja á hann tolla. Nú hefur hann hins vegar komist að því að hægt er að ráðskast með heiminn með hervaldi,“ skrifar hann.
Að mati Vals er því ólíklegt að Trump snúi aftur til fyrri stefnu.
„Því er ósennilegt að hann hætti því skyndilega og ákveði að verða aftur friðarforseti næstu þrjú árin,“ segir hann.

Komment