1
Fólk

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu

2
Innlent

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt

3
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

4
Innlent

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“

5
Fólk

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair

6
Fólk

Helgi Magnús kominn aftur á stjá

7
Minning

Þórir Einarsson er fallinn frá

8
Menning

Kærasta drullusokka

9
Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“

10
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

Til baka

Sanna tilkynnir framboð

„Gerum þetta saman því við viljum vor til vinstri“

Sanna Magdalena
Sanna Magdalena MörtudóttirSanna býður sig fram til borgarstjórnar
Mynd: Víkingur

Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins í Reykjavík og vinsælasti borgarfulltrúi borgarinnar, hyggst bjóða sig fram í komandi sveitarstjórnarkosningum í vor, en að hún ætli ekki að hætta í Sósíalistaflokknum, þrátt fyrir þrýsting frá nýrri stjórn. Þetta kemur fram á nýrri heimasíðu hennar þar sem hún boðar breiða vinstrisamstöðu og leggur áherslu á félagshyggju í borgarstjórnarmálum.

Sanna segir að lausnir fyrir Reykjavík felist í því að byggja borg sem setur lífsgæði og réttlæti í forgrunn. Hún hvetur fólk á vinstri vængnum til að taka höndum saman fyrir næstu kosningar og segir nauðsynlegt að skapa „raunverulegt afl“ sem geti unnið að breytingum.

Gagnrýnir markaðsvæðingu húsnæðis og dýra þjónustu

Í yfirlýsingu sinni segir Sanna stærsta vandann í Reykjavík vera markaðsvæðingu húsnæðis, sem hún segir hafa verið afhent verktökum, bröskurum og leigusölum á kostnað almennings.

Afleiðingarnar séu skýrar: fólk neyðist burt úr borginni í leit að viðráðanlegu húsnæði eða situr föst í ótryggum aðstæðum. Hún bendir einnig á að sjálfsögð þjónusta við börn, svo sem tómstundir, sé orðin of dýr, og sama gildi um almenningssamgöngur, sem séu bæði dýrar og tímafrekar.

Vill borg sem þjónar fólki – ekki fjármagnseigendum

Sanna segir að Reykjavík eigi að byggjast upp út frá þörfum barna, eldra fólks, leigjenda, ungs fólks og tekjulágra. Hún kallar eftir öflugri nærþjónustu og hverfum þar sem stutt er í allt sem skiptir máli.

Hún leggur jafnframt áherslu á sanngjarnt skattkerfi og gagnrýnir að auðugustu íbúar borgarinnar greiði lítið til samfélagsins. Reykjavík eigi að leiða baráttuna fyrir útsvari á fjármagnstekjur þeirra ríkustu.

Óvissa innan Sósíalistaflokksins – en ætlar ekki að hætta

Sanna vísar í mikla óvissu innan Sósíalistaflokksins eftir stjórnarskipti og telur að margir hafi áhyggjur af stefnu flokksins. Hún segist þó ætla að vera áfram innan hans þrátt fyrir þrýsting frá nýrri stjórn.

„Ég starfa fyrir grasrótina og fólkið í borginni,“ segir hún og bætir við að hún trúi því að á næsta aðalfundi taki við stjórn með skýra sýn og traust félaga.

Erfitt er að lesa í orð Sönnu um það hvort hún hyggist bjóða sig fram undir fána Sósíalistaflokksins eða nýs framboðs en hún ætlar að minnsta kosti ekki að segja sig úr flokknum.

Boðar breiða vinstrisamstöðu

Sanna kallar eftir sameiginlegum vettvangi vinstrisins, óháð flokksmerkjum, þar sem hugmyndir fái að blómstra og unnið sé út frá því sem sameinar frekar en sundrar.

Hún hvetur einnig fólk í öðrum sveitarfélögum til að taka þátt í samtali og byggja upp tengsl þvert á landið.

„Gerum þetta saman því við viljum vor til vinstri,“ segir hún í lok yfirlýsingarinnar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Hinn vannýtti rababari
Menning

Hinn vannýtti rababari

Björk Bjarnadóttir veit hvað hún syngur
Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði
Myndir
Fólk

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði

Hver er Lúkas Geir?
Nærmynd
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“
Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair
Fólk

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt
Innlent

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu
Myndir
Fólk

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“
Innlent

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“

Helgi Magnús kominn aftur á stjá
Fólk

Helgi Magnús kominn aftur á stjá

Þurfti að fara í röntgen eftir Röntgen
Innlent

Þurfti að fara í röntgen eftir Röntgen

Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“
Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“

„Það er veruleiki sem við búum við.“
Sigmundur Davíð harðneitar tengslum við MAGA-hreyfinguna
Pólitík

Sigmundur Davíð harðneitar tengslum við MAGA-hreyfinguna

Landsliðshetja leiðir Miðflokkinn
Pólitík

Landsliðshetja leiðir Miðflokkinn

Veitir 91 milljón í styrki
Pólitík

Veitir 91 milljón í styrki

Ísland tekur þátt í máli fyrir Alþjóðadómstólnum
Pólitík

Ísland tekur þátt í máli fyrir Alþjóðadómstólnum

Þorgerður heldur til Bandaríkjanna
Pólitík

Þorgerður heldur til Bandaríkjanna

Loka auglýsingu