1
Pólitík

Inga brast í grát á Alþingi

2
Menning

Misþyrming á Selfossi

3
Heimur

Einn látinn eftir slys á Tenerife

4
Peningar

Snjallsímum velt úr sessi sem jólagjöf ársins

5
Pólitík

Sakaði þingmenn Flokks fólksins um lygar

6
Innlent

Drífa Kristín metin hæfust

7
Pólitík

Hanna Katrín skipar nýja stjórn

8
Innlent

Aðalmeðferð í morðmáli Margrétar Löf hefst eftir viku

9
Innlent

Sérsveitin á ferðinni

10
Innlent

Kallar eftir nýrri Búsáhaldabyltingu

Til baka

Segir þjóðarmorð nú orðið að meginstraumsviðhorfi

„Ísraelar hafa misst vitið“

Kristinn Hrafnsson
Kristinn HrafnssonRitstjórinn rýnir í óhugnanlega skoðanakönnun.
Mynd: Facebook

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, fordæmir harðlega stefnu Ísraelsríkis í garð Palestínumanna í nýrri færslu á Facebook. Þar lýsir hann yfir djúpri vantrú á þá hugmynd að öfgar sem kalla eftir útrýmingu Palestínumanna séu jaðarskoðanir í Ísrael og segir þess í stað að slíkar hugmyndir séu orðnar meginstraumsviðhorf.

„Ísraelar hafa misst vitið,“ skrifar Kristinn. Hann vísar þar til nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var á vegum Penn State-háskóla í Bandaríkjunum og sýni að 82% gyðinga í Ísrael styðji algera útrýmingu Palestínumanna á Gaza, lifandi eða dauðum. Um 47% styðji jafnframt þjóðarmorð með beinni slátrun allra íbúa svæðisins.

504927041_10162533826237964_7403682862217050362_n
SkoðanakönnuninTölurnar eru sláandi.
Mynd: Facebook

Kristinn bendir á að áður hafi verið auðvelt að afskrifa viðhorf sem hvetja til fjöldadrápa sem öfgafullar jaðarskoðanir, en að þær séu nú orðnar viðtekin afstaða í Ísrael. Þá gagnrýnir hann sérstaklega trúarlega réttlætingu aðgerða Ísraelshers og vísar til spurningar úr fyrrnefndri könnun þar sem þátttakendur voru spurðir hvort þeir studdu að IDF (Ísraelsher) beitti aðferðum líkum þeim sem lýst er í Biblíusögunni af Jeríkó, þar sem öllu lífi var útrýmt. Tæpur helmingur hafi svarað því játandi, að sögn Kristins.

„Ísrael er orðið að ofstækisríki sem byggir aðgerðir sínar á grunni yfirburðar- og forréttindahyggju með tilvísun og réttlætingu í kreddubækur trúarinnar – Guð hefur gefið grænt ljós á slátrun og þjóðarmorð,“ skrifar hann.

Kristinn dregur í kjölfarið upp samlíkingu við hryðjuverkasamtökin ISIS og segir Ísrael nú beita hliðstæðum aðferðum og réttlætingum. Þeir sem gagnrýni þessa samlíkingu og haldi því fram að Ísrael sé lýðræðisríki með vestræn gildi, ættu að skoða söguleg fordæmi um hvernig lýðræðisríki geti runnið inn í ofstæki og nefnir þar Þýskaland á fjórða áratug síðustu aldar.

„Þýska þjóðin breyttist samt í vitfirrta drápsvél með beinni þátttöku og yfirlýstu eða þegjandi samkomulagi. Eins er farið með Ísrael í dag,“ segir Kristinn Hrafnsson að lokum í færslunni.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Þrjótur skvetti málningu á bíla
Innlent

Þrjótur skvetti málningu á bíla

Var að verki í Hafnarfirði
Lítil þyrla nauðlenti á akri
Heimur

Lítil þyrla nauðlenti á akri

Tvö Múlaborgarmál felld niður - eitt fer fyrir dóm
Innlent

Tvö Múlaborgarmál felld niður - eitt fer fyrir dóm

Mainz tapar máli gegn leikmanni sem studdi Palestínu opinberlega
Sport

Mainz tapar máli gegn leikmanni sem studdi Palestínu opinberlega

Miðflokkurinn sat hjá í atkvæðagreiðslu um réttindi fatlaðs fólks
Pólitík

Miðflokkurinn sat hjá í atkvæðagreiðslu um réttindi fatlaðs fólks

Sjúklingur myrti sjúkraliða í Austur-Svíþjóð
Heimur

Sjúklingur myrti sjúkraliða í Austur-Svíþjóð

Fágæt perla í Sundunum til sölu
Myndir
Fólk

Fágæt perla í Sundunum til sölu

Mataráhrifavaldurinn Michael Duarte skotinn til bana af lögreglu
Heimur

Mataráhrifavaldurinn Michael Duarte skotinn til bana af lögreglu

Rússneski herinn pyntar aðstandendur liðhlaupa
Heimur

Rússneski herinn pyntar aðstandendur liðhlaupa

Sakaði þingmenn Flokks fólksins um lygar
Myndband
Pólitík

Sakaði þingmenn Flokks fólksins um lygar

Stefán sendi pillu á gamla skólasystur
Pólitík

Stefán sendi pillu á gamla skólasystur

Ný gögn sýna viðbrögð Andrews við ásökunum í tölvupósti frá Ghislaine
Heimur

Ný gögn sýna viðbrögð Andrews við ásökunum í tölvupósti frá Ghislaine

Innlent

Þrjótur skvetti málningu á bíla
Innlent

Þrjótur skvetti málningu á bíla

Var að verki í Hafnarfirði
Kallar eftir nýrri Búsáhaldabyltingu
Innlent

Kallar eftir nýrri Búsáhaldabyltingu

Tvö Múlaborgarmál felld niður - eitt fer fyrir dóm
Innlent

Tvö Múlaborgarmál felld niður - eitt fer fyrir dóm

Hellti bjór yfir slasaðan hjólreiðamann
Innlent

Hellti bjór yfir slasaðan hjólreiðamann

Leikskólastarfsmaðurinn ákærður
Innlent

Leikskólastarfsmaðurinn ákærður

Loka auglýsingu