
Bresku hjálparsamtökin Islamic Relief fordæma versnandi mannúðarkreppu á Gaza og segja nýju hjálparmiðstöðvarnar, sem reknar eru af Gaza Humanitarian Foundation (GHF) með stuðningi Ísraels og Bandaríkjanna, vera „dauðagildrur“.
„Fólk kemur í leit að brauði en er skotið, handtekið eða niðurlægt,“ segir í yfirlýsingu samtakanna.
Þau vara einnig við að fjöldi fólks víðs vegar um Gaza muni bráðlega deyja úr hungri og sjúkdómum nema alþjóðleg stjórnvöld beiti tafarlausum og raunverulegum þrýstingi á Ísrael um að binda endi á umsátrið, opna öll landamærahlið og tryggja öruggan og hindrunarlausan aðgang að mannúðaraðstoð í stórum stíl.
Islamic Relief gagnrýnir jafnframt nýja GHF-kerfið og segir það „brjóta gegn öllum grundvallarreglum mannúðaraðstoðar og stefna enn fleiri mannslífum í hættu“.
„Palestínumenn og hjálparstofnanir hafa ítrekað varað við því að hið umdeilda GHF-kerfi snúist ekki um að koma aðstoð til fólks og bjarga mannslífum, heldur um að gera hjálparstarfið að vopni og festa í sessi yfirráð Ísraels,“ segir í yfirlýsingunni.
Komment