Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, var greinilega mjög ósáttur við orðræðu kaþólsku kirkjunnar á Íslandi en í gær var séra Jakob Rolland, kanslari kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, í sviðljósinu vegna ummæla hans um samkynhneigða.
Sagði hann meðal annars að samkynhneigt fólk sem ekki á í ástarsamböndum við samkynja fólk sé velkomið í kaþólsku kirkjuna og að samkynhneigt fólk geti leitað aðstoðar presta kirkjunnar vilji það breyta líferni sínu.
„Það er það sem vantar mjög mikið í nútímaþjóðfélagi. Sá sem vill komast út úr slíku líferni fær enga aðstoð.”
Ræða Sigmundar
Frú forseti. Kaþólska kirkjan býðst nú til að deyfa kynhneigð Íslendinga af því að þeir skulu skammast sín fyrir hana. Nú ætla ég ekki að gerast svo bíræfinn að biðja kaþólsku kirkjuna um að deyfa trúhneigð sína enda er tjáningarfrelsi í landinu og trúfrelsi. En það eru líka lög í landinu. Frú forseti, mig langar að vitna í landslög, með leyfi forseta:
„Hver sem með nauðung, blekkingum eða hótunum fær einstakling til að undirgangast ógagnreynda meðferð í þeim tilgangi að bæla eða breyta kynhneigð, kynvitund eða kyntjáningu hans skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum. Hver sem lætur barn yngra en 18 ára undirgangast meðferð sem greinir í 1. mgr. skal sæta fangelsi allt að 4 árum. Sömu refsingu skal sá sæta sem færir barn yngra en 18 ára úr landi í sama tilgangi. Hver sem framkvæmir, hvetur með beinum eða óbeinum hætti til eða hefur þegið fé vegna meðferðar sem greinir í 1. mgr. skal sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári.“
Kaþólska kirkjan á Íslandi er að semja sig úr lögum við Ísland með þessum ömurlegu ummælum sem er það argasta afturhald sem við höfum heyrt á þessu ári. Hver eru skilaboðin til samkynhneigðs fólks og hinsegin fólks í landinu? Hver eru skilaboðin til fjölskyldna þeirra? Hver eru skilaboð til allra bandamanna þeirra? Hver eru skilaboð til allra Íslendinga sem vilja búa í frjálslyndu, lýðræðislegu samfélagi sem trúir á mannréttindi og setja lög til að tryggja mannréttindi? Hver eru skilaboðin? Þau eru: Skammist ykkar. Skammist þið ykkar fyrir kynhneigð ykkar. Ætlum við að líða þetta? Ætlum við að segja sem svo: Þetta er bara kaþólska kirkjan, hún hlýtur að mega hvað sem er í nafni trúfrelsis, í nafni tjáningarfrelsis. Nei, við ætlum ekki að líða þetta. Við erum önnur þjóð en það sem kaþólska kirkjan er að segja hér á Íslandi.
Við lok ræðu Sigmundar mátti heyra þingmenn kalla „heyr heyr” og flutti Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, einnig ræðu þar sem hún tók í svipaðan streng og Sigmundur.


Komment