
Sigurður Helgason, fyrrverandi upplýsingafulltrúi Umferðarráðs, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 30. apríl síðastliðinn, á 71. aldursári. Hann fæddist í Reykjavík 1. október 1954. Foreldrar hans voru Valný Bárðardóttir húsfreyja og Helgi Sæmundsson, ritstjóri og rithöfundur. Sigurður var næstyngstur af níu bræðrum og ólst upp í Vesturbæ Reykjavíkur.
Félag íslenskra bifreiðaeiganda minnist hans á heimasíðu sinni.
Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1975 og hóf nám í bókasafnsfræði og sagnfræði við Háskóla Íslands. Sigurður starfaði sem kennari og bókavörður við Fellaskóla á árunum 1977–1985, og síðar sem frétta- og dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu 1985 og 1986. Hann var framkvæmdastjóri Fararheillar ’87 og samstarfsverkefnis bifreiðatryggingafélaganna árið 1987.
Frá árinu 1988 og allt þar til starfslok gegndi Sigurður störfum hjá Umferðarráði, síðar Umferðarstofu, lengst af sem upplýsingafulltrúi. Þar varð hann þekkt andlit og rödd, meðal annars í Útvarpi Umferðarráðs, þar sem hann var reglulegur gestur og rödd sem landsmenn treystu. Um tíma á tíunda áratugnum gegndi hann einnig starfi ritstjóra FÍB-blaðsins og sinnti auk þess ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB).
Meðfram sínum daglegu störfum tók Sigurður að sér ýmis verkefni, meðal annars kennslu á umferðaröryggisnámskeiðum fyrir Sjóvá og skrifaði bókmenntagagnrýni um barnabækur í DV í nokkur ár.
Eftirlifandi eiginkona hans er Anna Ólafsdóttir geislafræðingur. Þau eignuðust þrjú börn: Stefán Ólaf, Ölmu og Sigríði. Barnabörnin eru sex talsins.
Komment