
Sigurbjörg Rún Jónsdóttir hefur tekið við stöðu deildarstjóra Eyjafjarðardeildar Rauða krossins en greint er frá þessu í tilkynningu frá Rauða krossinum.
Sirrý, eins og hún er jafnan kölluð, mætti til starfa í höfuðstöðvum deildarinnar í Viðjulundi 2 á Akureyri í dag. „Ég hlakka til að kynnast öllum sjálfboðaliðum og starfsfólki deildarinnar og halda áfram að byggja upp það mikilvæga starf sem deildin sinnir á Norðurlandi,“ segir Sirrý.
Sirrý er 57 ára og alin upp á Akureyri. Hún er með BA-gráðu í íslensku, meistaragráðu í mannauðsstjórnun og er einnig markþjálfi. Áður starfaði hún sem verkefnastjóri hjá Háskólanum á Akureyri.
Auk Sirrýjar starfa sjö á skrifstofu Eyjafjarðardeildar Rauða krossins, flest í hlutastarfi. Sjálfboðaliðar deildarinnar voru 382 í árslok 2025 og hafa þeir aldrei verið jafnmargir.

Komment