1
Minning

Gunnar Smári segir frá andláti herbergisfélaga síns á spítalanum

2
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

3
Minning

Haukur Guðmundsson er fallinn frá

4
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

5
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

6
Fólk

Sérlega smekklegt hús á Seltjarnarnesi til sölu

7
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

8
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

9
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

10
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Til baka

Stjórn Bifrastar boðar sáttaferli eftir niðurstöðu siðanefndar

„Við hörmum að málið hafi ratað í fjölmiðla.“

Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á BifröstStjórn háskólans leitar nú sátta
Mynd: bifrost.is

Stjórn Háskólans á Bifröst hefur sent starfsfólki og nemendum tilkynningu í kjölfar niðurstöðu siðanefndar skólans, þar sem kemur fram að þrír akademískir starfsmenn teljist ekki hafa brotið gegn siðareglum. Tilkynningin var send út eftir að siðanefnd lauk umfjöllun sinni um málið, sem hefur verið til umtals í samfélaginu undanfarnar vikur.

Í tilkynningunni segir: „Siðanefnd Háskólans á Bifröst hefur úrskurðað í málum þriggja akademískra starfsmanna og er niðurstaða nefndarinnar að þeir teljast ekki brotlegir við siðareglur. Siðanefnd hefur einnig komist að þeirri niðurstöðu að rétt hafi verið að taka málið til efnislegrar umfjöllunar.“

Þá er fjallað sérstaklega um hlutverk stjórnenda í málinu. „Hvað varðar hlut stjórnenda þá kemst siðanefndin að þeirri niðurstöðu að ekkert í gögnum málsins bendi til þess að efasemdir um framlag höfunda hafi einkennst af hvatvísi eða verið settar fram af annarlegum ástæðum.“ Jafnframt kemur fram að nefndin geri „ekki athugasemdir við störf dr. Margrétar Jónsdóttur Njarðvík, dr. Guðrúnar Johnsen og dr. Kaspers Kristensen.“ Að lokum þakkar stjórnin siðanefnd fyrir störf hennar.

Í áframhaldandi skilaboðum til nemenda og starfsfólks segir stjórnin sig meðvitaða um áhrif umræðunnar síðustu vikna. „Við vitum að umræður síðustu vikna hafa haft mikil og djúpstæð áhrif á starfsfólk og nemendur háskólans. Við hörmum að málið hafi ratað í fjölmiðla.“

Stjórnin leggur áherslu á mikilvægi þess að hægt sé að leita til siðanefndar án ótta.

„Stjórnendur, starfsfólk og nemendur innan skólans og utan, þurfa að geta leitað til siðanefndar eða verið þar til umfjöllunar án ótta. Því telur stjórn rétt að hefja skoðun á ferlum og siðareglum með það að leiðarljósi að tryggja að ferlar séu skýrir, að skilningur ríki um þá, og um leið að siðanefnd hafi vinnufrið.“

Í tilkynningunni er einnig minnt á lögbundið hlutverk siðanefnda innan háskóla. „Starfsemi siðanefnda er hluti af innra gæðaeftirliti háskóla, sem kveðið er á um í lögum. Alkunna er að eftirlit með gæðum náms, kennslu og rannsókna er samofið starfsemi háskóla, enda eiga nemendur og samfélagið allt að geta treyst störfum háskólanna.“

Þá segir stjórnin að það eitt að vísa máli til siðanefndar jafngildi ekki árás. „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför, enda eru slík mál ekki gerð opinber af hálfu háskóla. Háskólinn á Bifröst hefur enga heimild til að reka siðarnefndarmál opinberlega. Viðbrögð Háskólans á Bifröst við umfjöllun í fjölmiðlum síðustu vikna verða því að skoðast í því ljósi.“

Að sögn stjórnar tekur nú við sáttaferli. „Eins og fram hefur komið tekur nú við sáttaferli sem er á forræði stjórnar. Við ætlum að taka það föstum tökum og gerum okkur grein fyrir hversu mikilvægt er að ná sáttum innan háskólans.“ Unnið sé að því að finna aðila til að leiða ferlið. „Við vinnum nú að því að finna aðila sem nýtur trausts til að leiða sáttaferlið með þátttöku allra starfsmanna. Stjórnin óskaði m.a. eftir tillögum frá Félagi akademískra starfsmanna Bifrastar.“

Í lok tilkynningarinnar þakkar stjórnin starfsfólki og nemendum fyrir þolinmæði og stillingu. „Stjórnin vill þakka ykkur, starfsfólki og nemendum, það æðruleysi og þá biðlund sem þið hafið sýnt í þessu máli. Við vinnum öll að sama markmiði og nú þarf að endurnýja traust innan háskólans.“

Tilkynningin er undirrituð af Ársæli Harðarssyni, stjórnarformanni Háskólans á Bifröst.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu
Innlent

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum
Heimur

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“
Heimur

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

Limminnsti maður heims biðst afsökunar
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

Clinton segist ekki hafa átt í kynferðislegum samskiptum við konuna í pottinum
Myndband
Heimur

Clinton segist ekki hafa átt í kynferðislegum samskiptum við konuna í pottinum

„Velkomin í sturlaðan heim“
Innlent

„Velkomin í sturlaðan heim“

Innlent

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu
Innlent

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu

„Velkomin í sturlaðan heim“
Innlent

„Velkomin í sturlaðan heim“

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

Loka auglýsingu