Stúdentaráð Háskóla Íslands sendi frá sér yfirlýsingu í síðustu viku um málefni hinsegin fólks í skólanum en málefni þeirra hafa verið í sviðljósinu á undanförnum árum og telja margir að um bakslag í jafnréttisbaráttunni sé um að ræða.
„Stúdentaráð Háskóla Íslands stendur með hinsegin stúdentum og fordæmir alla hatursorðræðu og hvers kyns fordóma,“ segir í yfirlýsingunni.
„Háskóli Íslands á að vera öruggt og gott umhverfi þar sem nemendum líður vel. SHÍ minnir á að nemendur geta hvenær sem er haft samband við skrifstofu SHÍ og Q-félag hinsegin stúdenta,“ segir einnig í tilkynningunni og er tekið fram að fordómafullt efni gegn trans fólki hafi verið í dreifingu innan háskólans.
„SHÍ fordæmir harðlega alla hatursorðræðu og hvers kyns fordóma.“
Mannlíf sendi ítrekaðar fyrirspurnir á Arent Claessen, forseta SHÍ, og Sylvíu Martinsdóttur um málið og hefur þeim fyrirspurnum ekki verið svarað. Meðal þess sem spurt var um hver hafi verið að dreifa efninu í skólanum og hvers konar efni var í dreifingu
Einnig var spurt um hvað SHÍ gerði til að tryggja öryggi og jafnrétti trans nemenda í skólanum.


Komment