
Undirskriftasöfnun gegn fyrirhuguðu kílómetragjaldi í umferðinni hefur vakið mikla athygli en á innan við viku hafa nærri 40 þúsund manns skrifað undir kröfu um að fallið verði frá gjaldinu.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu Stefáns Pálssonar sagnfræðings, sem bendir á að umfang söfnunarinnar sé óvenjulegt í sögulegu samhengi. Samkvæmt samanburði við eldri undirskriftasafnanir sé hún nú þegar ein sú stærsta sem efnt hefur verið til hér á landi.
Stefán vekur athygli á því að ólíkt mörgum af stærstu undirskriftasöfnunum áður, sem nutu stuðnings öflugra hagsmunasamtaka, hafi þessi verið sett af stað af einum einstaklingi.
„Núna var það bara kona í Hveragerði sem stofnaði undirskriftalista á Ísland-punktur-is,“ bendir hann á.
Hann telur að vinsældir söfnunarinnar sýni annars vegar hversu auðvelt sé orðið að safna undirskriftum með opinberum stafrænum lausnum, en hins vegar að óánægja með kílómetragjaldið sé raunveruleg.
„Ekki verður litið fram hjá því að framkvæmdin á innleiðingu kílómetragjaldsins og kynning þess er meiriháttar flopp,“ segir Stefán.
Þrátt fyrir gagnrýnina sýnir hann fjármálaráðherra ákveðna samúð og bendir á að tímasetningin sé erfið, þar sem gjaldið er tekið upp á sama tíma og alþjóðleg olíukreppa hefur áhrif á kostnað og umræðu um samgöngur.

Komment