
Verkalýðsleiðtoginn Sólveig Anna Jónsdóttir er allt annað en sátt við laun hinnar svokölluðu yfirstéttar og tekur laun borgarstjóra sérstaklega fyrir í færslu sem hún birtir á samfélagsmiðlum.
„Þvílík sturlun,“ skrifar Sólveig um málið.
„Svo þegar þetta fólk lætur af embætti þykist það aldrei hafa tekið sér frí, voðalegur bömmer, og fær því með sér sem kveðjugjöf orlofsgreiðslur upp á margar milljónir eins og ekkert sé. Svo er fólk undrandi á því að ekkert gangi að hemja launaskrið og ná niður verðbólgu - pólitísk yfirstétt fer á undan með ömurlegu fordæmi og skammtar sér milljónir eins og ekkert sé á meðan hún ræður ekki einu sinni við að tryggja sómasamlega grunnþjónustu - hvaða hvata hefur þessi yfirstétt til þess að sýna ráðdeild - bókstaflega enga, fær að komast upp með hvað sem er - enda á ráðdeildin aðeins að vera hjá láglaunafólkinu sem starfar í fjársveltum umönnunarkerfunum sem enginn þykist bera ábyrgð á.“

Komment