
Samfélagsrýnirinn og sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason er ekki bjartsýnn á að Ísland gangi í ESB en hann greinir frá þessu í nýjum pistli sem hann birti á samfélagsmiðlum.
„Það gengur hratt á pólitískt auðmagn ríkisstjórnarinnar,“ skrifar Egill um málið. „Verðbólga, vextir - og svo spilar óánægja með kílómetragjald inn í. ESB-umræðan þvælist líka fyrir, það hefur ætíð verið mjög auðvelt að magna upp andstöðu við ESB meðal þjóðarinnar. Taka upp nokkra frasa og endurtaka þá í sífellu. Ég segi það sama og árið 2010 - það er pólitískur ómöguleiki að koma Íslandi í Evrópusambandið. Gekk ekki þá, gengur ekki nú.“
Endar Egill á því að skrifa að hann telji þetta vera raunsætt mat.
Stjórnmálamaðurinn Gunnar Smári Egilsson er einn af þeim sem skrifa undir færslu Egils um ESB þar sem hann vill meina að þjóðernishyggjan spili hlutverk.
„Íslensk stjórnmál eru háð á heimavelli þjóðarernishyggjunnar. Liðið í bláu búningunum með stjörnurnar er alltaf á útivelli.“

Komment