
Drónaárás frá Úkraínu varð tveimur fullorðnum og 12 ára barni að bana í Alexandrovsky-héraði í Vladimir-héraði í Rússlandi, að sögn héraðsstjórans Alexander Avdeyev.
Einn drónanna hæfði tvíbýlishús, að sögn Avdeyev. Hjónin áttu einnig fimm ára dóttur sem var ekki á staðnum, heldur hjá ættingjum. Eldur sem kviknaði í kjölfar árásarinnar hefur nú verið slökktur.
Úkraínskir drónar gerðu einnig árásir á Voronezh- og Leníngrad-héruð yfir nóttina.
Í Voronezh-héraði greindust og voru skotnir niður 16 drónar, að sögn héraðsstjórans Alexander Gusev. Þar slasaðist 40 ára karlmaður þegar einn drónanna féll til jarðar eftir að hafa verið skotinn niður og var hann fluttur á sjúkrahús með brunasár. Þá varð tjón á aðstöðu iðnfyrirtækis í héraðinu og framleiðsla stöðvuð, en Gusev tilgreindi ekki hvaða fyrirtæki varð fyrir barðinu á árásinni. Sjálfstæða Telegram-rásin Astra greindi hins vegar frá því að áburðarverksmiðjan Minudobreniya í Rossosh hefði orðið fyrir árás.
Í Leníngrad-héraði voru að minnsta kosti 22 drónar skotnir niður, að sögn héraðsstjórans Alexander Drozdenko, án þess að tilkynnt væri um manntjón eða tjón á mannvirkjum. Astra greindi þó frá því að drónar hefðu ráðist á olíuútflutningshöfnina í Ust-Luga alla nóttina. Höfnin hefur ítrekað orðið fyrir slíkum árásum undanfarnar tvær vikur.

Komment