
Nú er fermingartímabilið hafið og ákvað Mannlíf því að heyra í nokkrum bráðskemmtilegum einstaklingum til að spyrja þá út í þeirra upplifun af fermingum. Bænir, gjafir og Jesús sjálfur.
Næst til að svara fermingarspurningum Mannlífs er Tinna Rún Jónasdóttir, lögfræðinemi og fyrirsæta.
Hver var þín upplifun af fermingarfræðslunni?
Mér fannst fermingafræðslan vera mjög áhugaverð og smá skrýtin þar sem ég var þá ekki alveg búin að átta mig á þessari sögu sem lá að baki fræðslunnar. Mér fannst fermingafræðslan vera ótrúlega skemmtileg og fræðandi þar sem hún fékk mann til þess að pæla í hlutum tengdum bæði lífinu og dauðanum. Minnir að við hittumst einu sinni í viku og vorum að fara yfir fræðslu og sögur um það sem var talið æðra mannkyninu. Síðan auðvitað fórum við í messur sem voru þó nokkrar, held að maður þurfti að fara í minnsta lagi sirka 10 sinnum í messu! Sá sem að fór með fermingafræðsluna gerði hana einstaklega skemmtilega og held að það sé ein af megin ástæðum fyrir því að þetta var jákvæð upplifun (Shoutout á Hjalta). Ég fermdist með vinum mínum og fannst það örugglega skemmtilegasti parturinn af öllu, fá að hlægja og hafa gaman af þessu öllu.
Hvernig var veislan?
Veislan var frekar stór þar sem ættingjar komu og þekkti maður ekki alveg alla á þeim tíma. Ég var með allskonar veitingar og auðvitað var hent í eina stóra kjúklingasúpu af honum Sigga kokk, ásamt fjölmörgum kökum Veislan var haldin í stóra salnum í Laugarnesskóla þar sem uppstoppuðu dýrin fylgdust með fjörinu.
Hvernig leið þér í athöfninni?
Athöfnin var haldin í Laugarneskirkju og var mjög falleg. Mér fannst þetta meira flipp heldur en eitthvað sem ég þurfti að taka mikið mark á þá. Ég var smá stressuð yfir því að þurfa að læra texta utanað og þurfa tala fyrir framan alla en fékk síðan að vita að ég mætti vera með blað og lærði engann texta utanað. Mjög metnaðarfull en það er bara fyndið að hugsa út í það. Pínu fyndið að ég var búin að kaupa kjól en hann var svo gegnsær að ég þurfti að kaupa nýjan. Prófaði síðan fermingakjólinn um daginn og ég passaði í hann!
Vorum líka nokkrar sem að spiluðum saman á klarínett í teitum og meðal annars fermingunni minni. Hún Vilborg Jónsdóttir skólahljómsveitarstjóri var alltaf mikil fyrirmynd og er þakklát fyrir að hún hafi gefið sér tíma í að mæta í ferminguna mína, hennar er sárt saknað.
Hvenær fórstu síðast í fermingu og hjá hverjum?
Held að ég hafi farið árið 2024 síðast í fermingu hjá frænda mínum. Mér er ekki boðið í neinar fermingar á þessu ári og ég er eiginlega bara mjög fegin því ég borða alltaf þangað til ég get ekki hreyft mig.

Komment