
Alma MöllerEr heilbrigðisráðherra Íslands
Mynd: Stjórnarráðið
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 91 milljón króna í styrki til félagasamtaka sem vinna að mikilvægum verkefnum á sviði heilbrigðismála í þágu tiltekinna hópa.
Alls hlutu 40 verkefni styrk og námu styrkfjárhæðir á bilinu 400.000 til 5.000.000 kr.
„Félagasamtök sem starfa að heilbrigðis- og lýðheilsumálum eru mörg og verkefni þeirra afar fjölbreytt. Það sem þau eiga sameiginlegt er að innan vébanda þeirra starfa einstaklingar sem eru reiðubúnir að gefa af tíma sínum og orku til að bæta líf annarra og vinna samfélaginu gagn. Því er mikilvægt að stjórnvöld styðji við starfsemi þeirra, líkt og gert er með styrkjum sem þessum,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment