1
Innlent

Ris og fall Kleina

2
Innlent

Fleiri konur stíga fram vegna Kleina

3
Innlent

Kleini mun senda frá sér yfirlýsingu um „sakleysi“ í dag

4
Peningar

Þungur rekstur Kleina bakvið glansmyndina

5
Minning

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir er látin

6
Fólk

Selja hús sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

7
Innlent

Matvælastofnun varar við Íslandsnaut ungnautahakki

8
Innlent

Átta Kínverjar ákærðir

9
Fólk

Fyrrum þingmaður kominn með nýja vinnu

10
Innlent

Stúlkan fundin

Til baka

Viðskiptavinir snéru niður mann sem réðst á starfsmann Nettó

Meint kynþáttahatur að baki árás á starfsmanninn

Nettó Miðvangi
Nettó MiðvangiViðskiptavinir komu starfsmanninum til bjargar
Mynd: Björgvin Gunnarsson

Karlmaður réðist á starfsmann Nettó í gærkvöldi en var snúinn niður af viðskiptavinum.

Sagt var frá því á hverfagrúppunni Norðurbærinn minn - íbúar í Norðurbæ í Hafnarfirði, að ráðist hafi verið á starfsmann Nettó í Miðvangi í Hafnarfirði um klukkan 21 í gærkvöldi. Manneskjan sem skrifaði færsluna, hrósar viðskiptavini sem hélt árásarmanninum niðri áður en lögreglan kom á vettvang. Þá gagnrýndi færsluhöfundurinn laka öryggisgæslu verslunarinnar.

„Ef sá sem var í Nettó núna um 21 leitið og náði að halda niðri einstaklingi sem réðst a starfsmann búðarinnar er hér inni þá langar mig að segja þér að þú ert algjör hetja! Það voru þarna börn og fullorðnir sem urðu mjög skelkuð. Ég vill ekki hugsa það til enda ef þú hefðir ekki verið þarna.

Eins vill ég koma á framfæri til Nettó að öryggisgæsla er algjört lágmark eftir að búðin fór að vera opin til 00.00. Það tók lögregluna rúmlega 10 mínútur að koma á vettvang.

Þetta hefði getað endað mjög illa.

Takk takk takk fyrir þitt afrek í kvöld.“

Samkvæmt heimildum Mannlífs er talið að kynþáttahatur sé rótin af árásinni en árásarmaðurinn hafði komið fyrr um daginn inn í Nettó og tekið tvo sígarettupakka með sér út úr versluninni án þess að greiða fyrir þá. Starfsmaður Nettó, sem er dökkur á hörund, hljóp á eftir manninum og spurði hvað hann væri að hugsa. Maðurinn hreytti þá í starfsmanninn ónotum, sagði honum að hypja sig heim til sín, þetta væri hans landið hans og viðhafði rasísk ummæli.

Seinna um kvöldið, um klukkan 21:00, mætti sami maður aftur í verslunina og tók þar drykk ófrjálsri hendi. Þegar sami starfsmaður reyndi að stöðva hann, réðist maðurinn á hann. Það varð starfsmanninum til happs að tveir viðskiptavinir Nettó stukku til og héldu manninum niðri þar til lögreglan mætti á vettvang og fjarlægði árásarmanninn. Starfsmaðurinn hlaut ekki alvarleg meiðsl af árásinni.

Hvorki náðist í lögregluna, né Nettó við gerð fréttarinnar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Átta Kínverjar ákærðir
Innlent

Átta Kínverjar ákærðir

Ákærandi í málinu lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Matvælastofnun varar við Íslandsnaut ungnautahakki
Innlent

Matvælastofnun varar við Íslandsnaut ungnautahakki

Kleini mun senda frá sér yfirlýsingu um „sakleysi“ í dag
Innlent

Kleini mun senda frá sér yfirlýsingu um „sakleysi“ í dag

Flutti inn lélegt kókaín frá Amsterdam
Innlent

Flutti inn lélegt kókaín frá Amsterdam

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir er látin
Minning

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir er látin

Segja nei við „helför Ísraels og Bandaríkjanna“
Innlent

Segja nei við „helför Ísraels og Bandaríkjanna“

Fyrrum þingmaður kominn með nýja vinnu
Fólk

Fyrrum þingmaður kominn með nýja vinnu

Þungur rekstur Kleina bakvið glansmyndina
Peningar

Þungur rekstur Kleina bakvið glansmyndina

Skráði sig í sögubækurnar með hvelli
Myndband
Sport

Skráði sig í sögubækurnar með hvelli

Selja hús sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á
Myndir
Fólk

Selja hús sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fleiri konur stíga fram vegna Kleina
Innlent

Fleiri konur stíga fram vegna Kleina

Karl og kona handtekin fyrir líkamsárás
Innlent

Karl og kona handtekin fyrir líkamsárás

Innlent

Átta Kínverjar ákærðir
Innlent

Átta Kínverjar ákærðir

Ákærandi í málinu lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Fleiri konur stíga fram vegna Kleina
Innlent

Fleiri konur stíga fram vegna Kleina

Matvælastofnun varar við Íslandsnaut ungnautahakki
Innlent

Matvælastofnun varar við Íslandsnaut ungnautahakki

Kleini mun senda frá sér yfirlýsingu um „sakleysi“ í dag
Innlent

Kleini mun senda frá sér yfirlýsingu um „sakleysi“ í dag

Flutti inn lélegt kókaín frá Amsterdam
Innlent

Flutti inn lélegt kókaín frá Amsterdam

Segja nei við „helför Ísraels og Bandaríkjanna“
Innlent

Segja nei við „helför Ísraels og Bandaríkjanna“

Loka auglýsingu