1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

3
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

4
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

5
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

6
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

7
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

8
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

9
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

10
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Til baka

Jón Hólmgeirsson er látinn

||
Mynd: Paolo Nicolello/Unsplash

Jón Hólmgeirsson er látinn en hann var á 91 aldursári.

Jón Hólmgeirsson fæddist 15. apríl 1935 í Stafni í Reykjadal og lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 3. apríl síðastliðinn, samkvæmt Akureyri.net.

Foreldrar hans voru Kristín Þorvaldsdóttir húsfreyja (1902–1985) og Hólmgeir Sigurgeirsson bóndi á Völlum í Reykjadal (1909–1984).

Jón ólst upp á Völlum í Reykjadal þar sem faðir hans stundaði búskap. Hann átti þar æsku sem einkenndist af frelsi og útiveru, en fjölskylda hans á rætur að rekja til Stafnshverfis þar sem búskapur hefur verið stundaður í ættinni um aldir. Hestamennska var stór hluti af uppvextinum og hélt sá áhugi áfram eftir að hann flutti til Akureyrar, þar sem fjölskyldan hafði aðstöðu fyrir hesta.

Systkini Jóns eru Hólmfríður, fædd 1932, og Sigurgeir (1939–2024).

Hann stundaði nám í barnaskóla í Stafni og síðar á Laugum í Reykjadal. Árið 1957 flutti hann til Akureyrar, hóf nám í Iðnskólanum og lauk sveinsprófi í húsgagnasmíði árið 1962. Samhliða námi starfaði hann á Húsgagnaverkstæði Ólafs Ágústssonar. Árið 1963 stofnaði hann eigið smíðaverkstæði, Fjarkann, en síðar færði hann starfsemina heim í bílskúr að Álfabyggð.

Jón starfaði einnig við kennslu, meðal annars í Oddeyrarskóla og Glerárskóla. Kennslan átti vel við hann og því hóf hann kennaranám 46 ára að aldri og lauk kennsluréttindum frá Kennaraskólanum árið 1982. Hann kenndi síðan við Gagnfræðaskóla og síðar Verkmenntaskólann á Akureyri fram til starfsloka, 67 ára gamall.

Á Akureyri kynntist Jón eiginkonu sinni, Sigrúnu Kristínu Kristjánsdóttur (1937–1988), og gengu þau í hjónaband 22. desember 1958. Þau eignuðust þrjú börn: Kristján Ingvar, Þorbjörgu Kristínu og Hólmgeir.

Fjölskyldan bjó fyrst í Strandgötu 35 en flutti árið 1966 í Álfabyggð í hús sem Jón byggði sjálfur og þar bjó hann alla tíð síðan.

Jón hafði mikinn áhuga á tréútskurði og kenndi þá list í áratugi, bæði í skólum og í félagsstarfi eldri borgara. Hann var einnig virkur í kórstarfi, meðal annars með Karlakór Akureyrar í yfir 25 ár og síðar með kirkjukórum í Eyjafirði. Á efri árum tók hann virkan þátt í starfi Félags eldri borgara á Akureyri.

Jón hélt góðri heilsu og andlegri skerpu fram á síðasta dag að því er fram kemur í minningargrein á Akureyri.net.

Eftirlifandi sambýliskona hans er Ada Elísabet Benjamínsdóttir, fædd 1936.

Að ósk hins látna fer útför hans fram í kyrrþey.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki
Heimur

Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki

Lík lágu á víð og dreif um götuna eftir árásina
Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999
Innlent

Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum
Innlent

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir
Innlent

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings
Innlent

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag
Pólitík

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Dagný Ósk Vestmann er látin
Minning

Dagný Ósk Vestmann er látin

Flosi Kristinsson er fallinn frá
Minning

Flosi Kristinsson er fallinn frá

Sigurður Hafstein er fallinn frá
Minning

Sigurður Hafstein er fallinn frá

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá
Minning

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá

Loka auglýsingu