InnlentAtli er kominn með húsnæði eftir 27 ár á götunni: „Herrarnir taka á móti heimsóknum velviljaðra“ Ragnar Erling Hermannsson vill hjálpa vini sínum, sem er kominn með húsnæði í fyrsta skipti í 27 ár. Vininum vantar húsgögn og pening. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og sjónvarpskona, birti færslu í dag þar sem hún birti myndskeið frá Ragnari Erling Hermannssonar, sem er hálfgerður talsmaður heimilislausra í Reykjavík. Í myndskeiðinu segir Ragnar frá því að vinur hans, Atli Sæmundsson,...
InnlentÖgurstund Julian Assange í London: „Framtíð blaðamennsku í heiminum kann að vera í húfi“ Síðasta áfrýjun Julian Assange er tekin fyrir í dag og á morgun í Roayl Court of Justice dómsalnum í London. Kristinn Hrafnsson segir nú komið að ögurstund fyrir Assange. Ritstjóri Wikileaks og vinur Julian Assange, Kristinn Hrafnsson, er nú staddur í London þar sem síðasta áfrýjun hins fallna ritstjóra, Julian Assange, er tekin fyrir en hann freistast til þess að...
InnlentKatla og Haukur selja Mjósundið: „Ég elska að búa hérna en við erum að fara í stórt prójekt“ Katla Hreiðarsdóttir og maðurinn hennar Haukur Unnar Þorkelsson undirbúa nú sölu á heimili sínu að Mjósundi 16 í hjarta Hafnarfjarðar. Þau hafa á undanförnum árum tekið íbúðina í gegn og gert að sinni. Þau voru dugleg að deila frá framkvæmdunum með fylgjendum á samfélags miðlum. Katla deildi myndskeiði af stórglæsilegu heimili þeirra af reikningi Systra og maka á samfélagsmiðlinum Instagram...
InnlentEgill er fallinn frá Egill Sigurðsson, bóndi og fyrrverandi oddviti Ásahrepps er látinn. Lést hann á Landspítalanum sunnudaginn 11. febrúar síðastliðinn en Egill var 64 ára. Egill fæddist þann 2. júní árið 1959 á Stokkalæk á Rangárvöllum. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Egilsson, bóndi á Stokkalæk og Kristín Jóhannesdóttir Oberman, húsmóðir. Árið 1979 hóf Egill og eiginkona hans, Guðfríður Erla Traustadóttir, búskap á Berustöðum...
InnlentGagnrýnir pólitíska umræðu á Íslandi: „Það er þyngra en tárum taki“ Sólveig Anna Jónsdóttir gagnrýnir pólitíska umræðu á Íslandi í nýrri Facebook-færslu. Verkalýðsforkólfurinn skeleggi, Sólveig Anna Jónssdóttir, skrifaði færslu á Facebook í gær þar sem hún talar um pólitíska umræðu á Íslandi, á tímum stríða og þjóðarmorðs. Gagnrýnir hún harðlega þá umræðu sem stjórnmálamenn taki þátt í og segir umræðuna ekki snúast um það hvernig hægt sé að koma á friði...
InnlentAgnar Rafn látinn Agnar Rafn J. Levy, bóndi í Hrísakoti og fyrrverandi oddviti og hreppstjóri Þverárhrepps, er látinn. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 16. febrúar síðastliðinn. Agnar Rafn fæddist 30. janúar 1940, á Ósum á Vatnsnesi. Andlátstilkynning Agnars birtist á mbl.is. „Hann ólst upp í föðurgarði við almenn sveitastörf. Agnar var til sjós árin 1958-59. Hann hóf störf hjá Ingvari Helgasyni, heildverslun,...
InnlentVara við flughálku: „Það er bölvað bras að beinbrotna“ Slökkviliðið og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vara við hálku á svæðinu. Í færslu frá slökkviliðinu á samfélagsmiðlinum Facebook segir að á nægu hafi verið að taka hjá þeim síðastliðinn sólarhring. “Farið endilega varlega, það geta leynst hálkublettir ansi víða og það er mjög skynsamlegt að eiga göngubrodda undir skóna til að vera stöðugri á fótunum. Það er bölvað bras að beinbrotna.“...
InnlentMagnús telur óskynsamlegt að halda partí í Grindavík: „Þú tjaldar ekki á sprungusvæði“ Magnús Tumi Guðmundsson jarðfræðingur var í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær og hann spurður út í ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um aðgengi Grindvíkinga að bænum. Í gær barst tilkynning þess efnis að íbúum og fyrirtækjum í Grindavík er heimilt að dvelja og starfa í bænum allan sólarhringinn. „Það eru alls kyns varnaðarorð sem fylgja þessari opnun og bara...
InnlentSat pikkfastur í snjóskafli – Ungmenni í Grafarvogi grunuð um íkveikju Miklar leysingar hafa verið síðastliðna daga og frá Efra-Breiðholti barst tilkynning um bílaleigubifreið fasta í snjóskafli. Lögreglan brást við og var ökumanninum var leiðbeint með úrlausn vandamálsins sem hann hafði komið sér í. Af gefnu tilefni bendir lögreglan á að mikil hálka er víðsvegar á götum borgarinnar og því tilefni fyrir ökumenn til að fara varlega í morgunumferðinni. Tilkynning barst...
InnlentTúlkur Navalny býr á Íslandi: „Hann var fullur af lífi og orku“ Úkraínsk kona sem býr á Íslandi, túlkaði fyrir Alexei Navalny í Póllandi. Hún segist sjokkeruð yfir dauða hans. Mannlíf ræddi við þau Andrei Menshenin, Rússa sem flutt til Íslands fyrir nokkru, og Anastasiiu Bortuali, frá Úkraínu, sem flutti hingað til lands þegar Rússland hóf innrás sína í land hennar. Umræðuefnið var Alexei Navalny og hvað dauði hans þýddi fyrir þeim....
InnlentÍslendingar um borð í skemmtiferðaskipi þar sem svæsin magapest gengur: „Magga gaf honum lexíu“ Bráðsmitandi magapest er komin upp í skemmtiferðaskipi sem er á leið til Márítáníu frá Suður Afríku. Íslendingur um borð skammaði yfirmann mötuneytis skipsins. Jóhann Helgi Hlöðversson og kona hans, Margrét Ormsdóttir eru nú stödd um borð í skemmtiferðaskipi sem er á leið til Márítáníu frá Suður Afríku. Upp er komin svæsin niðurgangspest en farþegar hafa verið að veikjast hver af...
InnlentIllugi segir hælisleitendur ekki vera vandamál: „Ekki hrekja fólk burt, ekki skella í lás“ Illugi Jökulsson segir flóttamenn og hælisleitendur ekki vera vandamál á Íslandi, þó sumum finnist það. Fjölmiðlamaðurinn og rithöfundurinn Illugi Jökulsson skrifaði Facebook-færslu í gær þar sem hann talar um flóttamenn og hælisleitendur. Segir Illugi að þrátt fyrir að sumir haldí því fram að það fólk sé vandamál hér á landi, sé það ekki staðreyndin. „Nokkrar staðreyndir: Flóttamenn og hælisleitendur eru...