InnlentVarðskipið Freyja siglir til Vestfjarða vegna snjóflóðahættu Lögreglan á Vestfjörðum bað Landhelgisgæsluna um aðstoð vegna slæmrar veðurspár og hugsanlegrar snjóflóðahættu um helgina. Lagði því áhöfnin á varðskipinu Freyju af stað úr höfn á Siglufirði að miðnætti í gær og er væntanlegt vestur á firði í morgunsárið. Almannavarnir vöruðu í gær við veðurspá helgarinnar, sem er slæm og að hætta væri á að færð myndi spillast og snjóflóðahætta...
InnlentVeður í Bjarna: „Sama lélega afvegaleiðing og ráðherra notaði þegar hann seldi pabba sínum banka.“ Björn Leví Gunnarsson er afar ósáttur við nýju sendiherraskipun Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra. Ekki eru allir sáttir við þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar að skipa fyrrverandi aðstoðarmann sinn, Svanhildi Hólm Valsdóttur, sem tímabundinn sendiherra í Bandaríkjunum. Í færslu á Facebook skrifar Píratinn um málið og hlekkjar frétt frá RÚV þar sem farið er yfir stöðuna. Í byrjun færslunnar vitnar Björn Leví í...
InnlentÓsáttur við samanburð við Kröfluelda: „Ótrúlega líkt ferli segja kjaftaskarnir!“ Björn Birgisson er afar ósáttur við vísindamenn sem líkja nýja gosinu á Reykjanesinu við Kröfluelda. Grindvíkingar eru farnir að vilja komast heim, þrátt fyrir nýafstaðið eldgos og nýja kvikusöfnun í nágrenninu. Vísindamenn hafa einhverjir líkt hinu nýja Sundhnúkagosi við Kröflueldanna, sökum þess að nú virðist sem kvikusöfnun sé hafin að nýju. Ekki eru allir sáttir við þá samlíkingu. Einn þeirra...
InnlentDæmdur vegna banaslyss – Talinn hafa sofnað undir stýri Héraðsdómur Vesturlands dæmdi fyrr í mánuðinum karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi vegna banaslyss á Snæfellsnesvegi þann 17.júlí. Auk þess var maðurinn sviptur ökuréttindum í hálft ár. Maðurinn var ákærður fyrir að aka bifreið „án nægilegs tillits og varúðar” sem varð til þess að hann ók yfir á rangan vegarhelming. Maðurinn var einnig talinn hafa verið ófær um að stjórna...
InnlentTíu koma til greina sem Íþróttamaður ársins 2023 – Gísli og Anton sigurstranglegir Tíu íþróttamenn kom til greina sem Íþróttmaður ársins 2023. Í dag var opinberað hverjir koma til greina í kjörinu en það eru Samtök íþróttafréttamanna sem veita verðlaunin. Í ár koma sex konur og fjórir karlmenn til greina. Verður þetta í 68. skipti sem verðlaunin eru afhent. Líklegast þykir að Gísli Þorgeir eða Aron Sveinn muni vinna verðlaunin þetta árið og...
InnlentDæmdur fyrir hrottalegt ofbeldi – Reyndi að ýta barnsmóður og syni fram af svölum Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í tveggja ára fangelsi, þar af 21 mánuð skilorðsbundinn, fyrir ítrekuð ofbeldis og fíkniefnabrot á árunum 2021 og 2022. Mbl.is fjallaði um dóminn í dag en maðurinn var ákærður í 15 mismunandi liðum. Árið 2021 er honum gefið að sök að hafa ítrekað ógnað barnsmóður sinni og beitt hana ofbeldi. Hann er sagður hafa rifið...
InnlentFimm Íslendingar í brennidepli NFL-liðs: „Áfram Patriots“ Fimm Íslendingar voru settir í sviðsljósið af NFL-liðinu New England Patriots en fimmmenningarnir ferðuðust til Bandaríkjanna til að horfa á leik með liðinu. Þeir Arnór, Ármann, Jóhann, Anton og Hermann ákváðu að skella sér á leik með NFL-liðinu og tilkynntu þeir komu sína á spjallsvæði stuðningsmanna liðsins á Reddit. Þar báðu þeir um ábendingar og hjálp varðandi hvernig þeir ættu...
InnlentFrost og hvít jól Mikið frost er um allt land í dag en samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands verður töluvert frost á landinu fram yfir jóladag. Kaldast var í nótt í Veiðivatnahrauni en þar mældist rúmlega 26 stiga frost. Í Svartárkoti í Bárðardal í mældist 24 stiga frost en í nágrannasveitinni, Mývatnssveit mældist rúmlega 23 stiga frost. Frosti er spáð á öllu landinu fram til...
InnlentÚtigangsfé í Þverárhlíð: „Alls staðar annars staðar betur komnar en heima hjá sér!“ Kindur ganga enn úti í Þverárhlíð í Borgarbyggð, þrátt fyrir vetrarhörkur. Steinunn Árnadóttir, hestakona, organisti og baráttukona bendir enn og aftur á slæma meðferð á kindum á bænum Höfða í Borgarfirði. Undanfarið ár hefur Steinunn verið afar dugleg við að benda á slæman aðbúnað fjárins á Höfða, sem virðist lítið hafa skánað miðað við nýjustu færslu Steinunnar. Í færslunni birti...
InnlentYfirlögregluþjónn gerði leyniupptöku af konu sem hann áreitti – Færður til í starfi Margeir Sveinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er sagður hafa tekið upp samtal sitt við fyrrum undirmann sinn en Heimildin greinir frá þessu. Margeir var sendur í leyfi fyrr á árinu og er hann sakaður um að hafa áreitt samstarfskonu sína kynferðislega um margra mánaða skeið. Þá er hann einnig sagður hafa sýnt af sér ofbeldisfulla hegðun sem olli lögreglukonunni...
InnlentFunda í dag vegna mögulegrar kviku Hundrað jarðskjálftar mældust í gær á Reykjanesi og dagurinn því heldur rólegur. Frá miðnætti hafa mælst 20 litlir skjálftar en fundað verður í dag vegna mögulegrar kvikusöfnunar undir Svartsengi. Sérfræðingar munu þar fara yfir málin en mögulegt þykir að kvikusöfnun sé hafin á ný á svæðinu. Að loknum fundi verður fundað að nýju með almannavörnum klukkan 13:00.
InnlentKarlmaður vopnaður hnífi í Kópavogi Lögregla hljóp uppi þrjá menn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi en eru þeir allir grunaðir um sölu og dreifingu fíkniefna. Mennirnir voru handteknir og vistaðir í fangaklefa. Fíkniefni og peningar voru haldlagðir. Síðar um kvöldið var óskað eftir aðstoð lögreglu í Kópavogi vegna líkamsárásar og þjófnaðar í verslun. Einn karlmaður var handtekinn á vettvangi en þegar betur var að gáð...