Innlent„Bankasýslan var ekki að fullu meðvituð um rauneftirspurn fjárfesta“ Ríkisendurskoðun hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna skýrslu um sölu ríkisins á eignarhlutum í Íslandsbanka, þar sem segir meðal annars: „Við vinnslu og í umsagnarferli skýrslu Ríkisendurskoðunar voru upplýsingar og athugasemdir sem fram komu af hálfu Bankasýslu ríkisins hafðar til hliðsjónar og tekið tillit til atriða sem embættinu þótti eiga rétt á sér og vörðuðu efni skýrslunnar og afmörkun hennar....
InnlentStríðsástand í undirheimunum: Reyksprengja sprakk inni á skemmtistaðnum Paloma Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út klukkan tvö í nótt að skemmtistaðnum Paloma við Naustina í miðbæ Reykjavíkur. Þó nokkuð mikinn reyk lagði út um rúðu sem hafði sprungið. Varðstjóri lögreglu segir í samtalið við RÚV að líklega hafi rúðan sprungið innan frá. Sá sagði ekki óvarlegt að álykta að um reyksprengju væri að ræða, en það sé þó í...
Innlent15 ára drengur stakk jafnaldra sinn í Grafarvogi í nótt 15 ára drengur stakk jafnaldra sinn í Grafarvogi í nótt. Pilturinn er ekki í lífshættu að sögn Margeirs Sveinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Mbl.is greinir frá þessu en lögreglan greindi ekki frá árásinni í dagbók lögreglu, líkt og venja er. Drengurinn er í haldi lögreglu en Margeir fullyrðir að málið tengist ekki hnífaárásinni fyrir viku eða hótunum vegna hennar.
InnlentVopnaðir dópsalar gómaðir í Hlíðunum – Löggan gaf stöðvunarmerki og ökumaður ók á umferðarskilti – Þrír menn voru handteknir í Hlíðunum í gærkvöldi. Allir eru þeir grunaðir um vörslu fíkniefna , hilmingu, brot á vopnalögum og fleira. Mennirnir voru allir vistaðir í fangageymlu lögreglu fyrir rannsókn málsins. Fíkniefnasali var gripinn glóðvolgur í miðbænum er hann var að selja aðila fíkniefni. Hann var látinn gista í fangageymslu og kaupandi fíkniefnanna verður kærður fyrir vörslu fíkniefna. Síðar...
InnlentÞórður myrti tvo yfir tíu ára tímabil: „Ég hef aldrei kennt neinum öðrum um örlög mín“ Þórður Jóhann Eyþórsson varð tveggja manna bani á aðeins 10 árum. Síðara morðið fór fram þegar hann var enn á skilorði vegna fyrra morðsins. Hæstiréttur Íslands dæmdi Þórð í þyngstu refsingu sem rétturinn hefur dæmt á síðustu öld, 20 ára fangelsi. Dómurinn var annar manndrápsdómurinn sem Þórður hefur fengið sem var sagður hafa verið í afar slæmum félagsskap þegar hann...
InnlentBragi hefur bjargað þremur mannslífum: „Það er alltaf góð tilfinning“ Þú fórst í frægan steinbítsróður. „Hann var athyglisverður,“ segi Bragi Ólafsson í viðtali við Reyni Traustason. Það er mesta aflaverðmæti sem línubátur hefur dregið á einum sólarhring. „Og sérstaklega á steinbít. Við vorum að leggja af stað í róður aðfaranótt mánudags,“ segir Bragi en þeir voru þrír frá Suðureyri. „Það var 250 tonna bátur frá Hornafirði sem var á loðnu...
InnlentMagga Frikka gerir lítið úr Gretu Thunberg: „Óheppilegt“ Ritstýran og baráttukonan Magrét Friðriksdóttir, einnig þekkt sem Magga Frikka, reynir að gera lítið úr sænska loftlagsaðgerðarsinnanum Gretu Thunberg í nýrri færslu á Facebook. Þar deilir hún fréttum af mikilli snjókomu í Skandinavíu og tengir þær við baráttu þeirrar sænsku gegn hamfarahlýnun jarðar. Við færsluna segir Magga: „Óheppilegt fyrir Grétu Túnbergh!“ Sænski loftlagsaðgerðasinninn Greta var yngsta manneskjan sem valin hefur...
InnlentEinkamál í Bændablaðinu slær í gegn: „Áttu dóttur sem gengur ekki út?“ Það er óhætt að segja að auglýsing sem er sögð hafa birst í nýjasta tölublaði Bændablaðsins hafi slegið í gegn innan Facebook-hópsins Fyndnir frændur. Það er svo sem engin furða enda er auglýsing kostuleg og minnir allmikið á gamla tíma. Auglýsingin birtist undir dálknum Einkamál og hljóðar svo: „Ertu stórbóndi á Suðurlandi? Áttu dóttir sem gengur ekki út? Handlaginn smiður...
InnlentOfbeldið að stóraukast í fangelsum líka: „Þetta eru hópar sem mega ekki hittast“ Fáir mótmæla því í dag að ofbeldi á Íslandi hafi stóraukist undanfarið. Fangelsi landsins eru ekki undanskilin þessari þróun. Samkvæmt Garðari Svanssyni, trúnaðarmanni Fangavarðafélags Íslands, þá er ofbeldi innan fangelsa að aukast. RÚV ræddi við hann. Garðar segir ofbeldi milli fanga aukast en einnig sé sumt ofbeldi sem beinist gegn fangavörðum. Fangavörðum bíðst þó ekki hnífstunguvesti, vegna fjárskorts. Eðlilega sé...
InnlentDagur svarar Villa Neto sem vill pósthús og Ríki miðsvæðis: „Þetta er að verða ansi þreytandi“ „Jæja Dagur, nú ætla ég að ónáða þig á Twitter. Þarf að vera fyllilega sammála Fríðu Ísberg, þetta er að verða ansi þreytandi.“ Þetta skrifar leikarinn geðþekki Vilhelm Neto á Twitter og deilir skjáskoti af Facebook þar sem kvartað er undan því að ekkert pósthús né Vínbúð sé lengur miðsvæðis og þá sérstaklega í Vesturbænum. Skjáskotið má sjá hér fyrir...
InnlentSkoðanakönnun Mannlífs – Ætlar þú að halda þig frá miðbænum um helgina? Afrit af smáskilaboðum hafa flogið manna á milli og fólk varað við að stunda næturlífið um helgina. Í skilaboðum stendur: „Þeir ætla að mæta 50-100 gæjar á nokkrum bílum og rusha dyraverðina og þeim sem að verða í þeirra vegi á Auto, Bankastræti og Lúx. Mælt er með að fólki haldi sig frá bænum og í raun bara að staðirnir...
InnlentSjáið hverju er hent á Íslandi meðan margir svelta: „Svona er þetta flesta daga“ Samtökin Vakandi vekja á Facebook athygli á því hve miklum mat sé hent í dag á Íslandi. Samtökin birta meðfylgjandi myndir sem sýna ruslagám á Íslandi sem er troðfullur af krásum. Ekki verður betur séð en ekkert sé að matnum. Samtökin skrifa: „Á meðan Matvælaþing undir Matvælaráðuneytið ræðir um allskyns lausnir sem eru auðvitað nauðsynlegar… viljum við oft gleyma undirstöðunni...