Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Bankasýslan var ekki að fullu meðvituð um rauneftirspurn fjárfesta“

Ríkis­endurskoðun hefur sent frá sér frétta­tilkynningu vegna skýrslu um sölu ríkisins á eignar­hlutum í Íslands­banka, þar sem segir meðal annars:

„Við vinnslu og í umsagnar­ferli skýrslu Ríkis­endur­skoðunar voru upplýsingar og athuga­semdir sem fram komu af hálfu Banka­sýslu ríkisins hafðar til hliðsjónar og tekið tillit til atriða sem embættinu þótti eiga rétt á sér og vörðuðu efni skýrslunnar og afmörkun hennar.

Skýrslan stendur því óhögguð þrátt fyrir þá greinar­gerð sem Banka­sýslan birti 16. nóvember sl. og þær athuga­semdir sem stofnunin hefur kosið að gera að umfjöllunar­efni eftir birtingu hennar.“

Einnig að „á fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis með fjármála- og efnahags­ráðuneyti í gær svaraði fjármála- og efnahags­ráðherra aðspurður að samskipti við Ríkis­endurskoðun í úttektar­ferlinu hefðu verið fagmannleg og að engin ástæða sé að hans mati til að draga í efa hæfni eða færni Ríkis­endur­skoðunar til að fjalla um málið.

Ríkis­endurskoðun hafnar aðdróttunum ákveðinna fjölmiðla síðustu daga um að annarleg sjónarmið hafi ráðið för við úttektar­vinnu embættisins.“

Segir í frétta­tilkynningunni að „fullyrt hefur verið m.a. að umfjöllun Ríkis­endur­skoðunar um tilboðabók sölu­ferlisins byggi á misskilningi embættisins. Það er rangt. Í skýrslu Ríkis­endur­skoðunar kemur fram að svör Banka­sýslu ríkisins til bæði embættisins og Fjármála­eftirlits Seðla­banka Íslands í maí sl. byggðu á umræddu Excel-skjali sem innihélt marga annmarka en ekki uppfærðri og villu­lausri útgáfu þess. Banka­sýslan áttaði sig ekki á þeirri staðreynd fyrr en í umsagnar­ferli úttektarinnar í október sl.“

Að lokum er síðan sagt að „gögn málsins sýna svo ekki verður um villst að Banka­sýslan var, líkt og kemur fram í skýrslu Ríkis­endur­skoðunar, ekki að fullu meðvituð um raun­eftirspurn fjárfesta þegar ákvörðun um leið­beinandi lokaverð var tekin að kvöldi 22. mars sl. Ekki er um neinn misskilning af hálfu Ríkis­endur­skoðunar að ræða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning